Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 140

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 140
Bjöm Magnússon siðgæðisvitund mannkynsins þroskast, og að á því stigi, sem hver maður er staddur, er hann bundinn við þær siðgæðishugmyndir, sem hann veit sannastar og réttastar. Að ætla sér að rjúfa þær reglur, sem manninum eru helgar, hvort heldur er fyrir venju eða ótta eða hlýðni við hið gamla eða vegna hins félagslega skipulags, er að fremja ofbeldi gegn eðlilegri framþróun siðavitundarinnar og drýgja synd gegn því, sem manninum er heilagt, og þar með að bíða tjón á sálu sinni. En það er himinvíður munur milli þess siðgæðis, sem þannig er bundið af ytri lögmálsboðum, og hins frjálsa siðgæðis guðsríkisins. Siðgæði guðsríkisins er nýtt líf, nýtt fyrirbrigði á jörðu. í þessu sambandi er rétt að taka til athugunar aðra mótbáru, sem ffam kemur gegn því, að Jesús hafi boðað nýtt siðgæði, sem laust væri við hinn þrönga sjónhring lögmáls Gyðinga. Hún er sú, að Jesús hafi þráfaldlega notað launahugmyndina, og hvatt menn til að breyta rétt, til þess að fá laun fyrir. Sé þessi athugasemd að öllu réttmæt, þá hlýtur að vera alvarleg tvískipting í siðakenningu Jesú. En einnig hér leysist ósamræmið upp, sé vel að gætt. Það er að vísu rétt, að Jesús talar oft um laun og endurgjald (Mt. 6,1.,4.,6.,18, 10,41, 20,lnn, Mk. 9,41). Er það ekki heldur óeðlilegt, eins og endurgjaldshugmyndin var rík í Gyðingdómnum, að hann noti það orðalag, en í því felst þó engan veginn, að maður eigi að fremja góðverk sín, til þess að hljóta laun fyrir, hvorki af mönnum, né heldur „á himni”. Þegar Jesús segir, að menn muni hljóta laun fyrir breytni sína, þá lýsir hann staðreynd, án þess að hana beri að skoða sem hvatningu (motiv) hinnar réttu breytni. „Þrátt fyrir orð eins og „laun yðar eru mikil á himni”, mundi það vera al-rangt að segja að Kristur hafi mælt með dyggðugu líferni sem ágóðafyrirtæki” (Inge, Ethics, bls. 75). Jesús mælir berlega á móti því, að menn fremji réttlæti sitt til að sýnast fyrir mönnum, og segir, að þeir, sem það geri, hafi þegar tekið út laun sín, sem eru ekki annað en það lof, sem þeim tekst að ávinna sér af mönnum (Mt. 6,lnn). Annað bera þeir ekki úr býtum. Breytni þeirra er ekki runnin úr hugskoti þeirra sjálfra, því setur hún ekkert spor í skapgerð þeirra, nema til að festa þá í hræsni þeirra. En þeir, sem fara að orðum Jesú, og fremja réttlæti sitt í leyndum, ekki til að sýnast, heldur af innri þörf, þeir hljóta laun fyrir „í leyndum”, án þess að þeim sé það sjálfum ljóst, að um nokkur laun sé að ræða; en launin eru þau, að skapgerð þeirra mótast til meiri festu í því að lifa sjálfkrafa samkvæmt vilja Guðs. í íslensku biblíuþýðingunni er þýtt: „faðir þinn, sem sér í leyndum, mun endurgjalda þér” (Mt. 6,4.,6.,18). Hér liggur alveg jafn- nærri að þýða: „faðir þinn, sem sér, mun endurgjalda þér í leyndum” (sbr. Schriften d.N.Tm. I. bls. 273), og sú þýðing nær betur anda fjallræðunnar og allrar kenningar Jesú, því að Jesús brýnir yfirleitt fyrir áheyrendum sínum að gera ekki góðverk sín í launaskyni, heldur af innri þörf þess kærleika, sem ekkert má aumt sjá. „Jesús hefur ekki heimtað með þessum orðum (Mt. 6,2-4) ölmusugjafir í meinlætaskyni, heldur er það hinn hreini tilgangur, sem hann krefst, þegar menn gefa ölmusur, eins og allir guðræknir Gyðingar gerðu” (Weinel, Theologie, bls. 59). 138
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.