Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 166

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 166
Bjöm Magnússon sjálfkrafa leiðir hana af sér. Samfélag lærisveina Krists er fyrst og fremst andlegt samfélag, byggt á sameiginlegum, andlegum þroska. Það standa í fullu gildi orðin um að leita fyrst ríkis Guðs og réttlætis þess, og enda þótt bent hafi verið á, að sú leit hafi í för með sér afskipti af hinum veraldlegu stofnunum viðskipta og framleiðslu, þá hlýtur sú viðleitni að vera knúin fram af leitinni að guðsríkinu, vitandi eða óvitandi, ef hún á að hafa varanleg áhrif. Það er hugarstefnubreytingin í hverjum einstaklingi, sem er grundvöllur allra sannra framfara, hið nýja gildismat, sem metur með tilliti til framkvæmdar guðsríkisins og þroskunar einstaklinganna í samræmi við vilja Guðs. Þannig er grundvöllur allra sannra umbóta rétt lagður í hugarfari einstaklinganna, og hvergi annars staðar. Þetta er hið sérstaka einkenni kristilegrar siðfræði öðrum fremur, það er hreinleikinn, heilindin, sannleiksþörfin; kærleikur, sem er ekki eftirlíktur eða þvingaður fram, heldur hið eiginlega eðli manns. Þess vegna hefur starf kirkjunnar, þeirrar stofnunar, sem sérstaklega hefur það hlutverk, að vinna að framkvæmd og útbreiðslu kristindómsins, fyrst og fremst verið fólgið í því, að hafa áhrif á hugi manna. Með boðun orðsins hefur hún reynt að breyta hugarfari fólksins og viljastefnu, með helgisiðum og sakramentum hefur hún reynt að koma mönnum í það andlega samfélag við Guð og hverjum við annan, sem gefur mönnum reynslu þess andlega veruleika, sem gildi allra hluta á að mælast við. Það hefur sem kunnugt er tekist misjafnlega, og verður nokkuð vikið að því í næsta kafla, hverjar muni vera orsakir þess og hvernig megi úr því bæta. Hér liggur fyrir að líta á kirkjuna sem framkvæmd bræðralags guðsríkisins, en það hlutverk er henni ætlað öðrum félagsskap fremur. Aður hefur verið minnst á skoðun rómsversku kirkjunnar á því, að hún væri hið sanna guðsríki, sem væri orðið að veruleika í guðveldisríki páfans. Jafnframt þeirri skoðun má að vísu finna aðra raunsærri, þar sem litið er svo á, að hin rómverska kirkja sé að vísu hin eina birting guðsríkis á jörðu, og utan hennar sé ekkert hjálpræði, en kjarni hennar sé hin ósýnilega kirkja, samfélag heilagra, þeirra, sem eru trúir þegnar hennar, þar sem hin sýnilega kirkja innihaldi einnig dauða meðlimi. Þessi skoðun er líkari skoðun mótmælendakirknanna, enda þótt þær haldi því ekki fram, að þær séu einar um hjálpræðið. Þannig má segja, að hin almenna skoðun sé sú, að hin almenna kristna kirkja sé samfélag, þar sem réttlæti guðsríkisins á að ríkja, en fyrir mannlegan ófullkomleik er hún enn langt frá því, að hafa náð því takmarki, og í hinni sýnilegu kirkju er því mikið af óguðlegum öflum, og (a.m.k. samkv. skilningi mótmælenda) enginn, sem hafi náð fullkomnun sinni, og hafi uppfyllt á sjálfum sér siðgæðishugsjón Krists. Einnig í hinum félagslegu sökum er kirkjan, samkvæmt skilningi mótmælenda, ófullkomin stofnun, sem hefur á sér öll þau merki mannlegs ófullkomleika sem önnur samtök mannanna hafa. Hin ósýnilega kirkja, eða samfélag heilagra, er í byrjun til á meðal vor á jörðu hér, í þeim mönnum, sem lengst hafa komist í því að lifa í samlífi við Guð og láta það líf verka á daglega breytni sína, en sem fullkominn 164
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.