Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1985, Page 8

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1985, Page 8
6 MÚLAÞING Sendibréf frá Þorvarði Kjerúlf til Sigurðar Vigfússonar Um þær mundir sem við vorum með þetta hefti í prófarkalestri barst Páli Pálssyni á Aðalbóli eftirfarandi bréf frá árinu 1883 ásamt uppdrætti eftir Þorvarð af vorþingsstaðnum að Krakalæk. Sveinbjörn Rafnsson sagnfræðingur sendi Páli þessi gögn. Okkur þykir við eiga að birta bréf þetta og uppdrátt með þessum myndum. Bréfið er í Landsbókasafni, merkt Lbs. 131, 4to. Ormarsstöðum 26. nóv. 1883. Góði vin, Nokkru fyrir veturnætumar var ég á heimleið utan af Héraði; lá leiðin hjá Þinghöfða við krakalæk; nótt var komin, en tungl-skin bjart og blíða veður; hægur andvari bar báruhljóðið á móti mjer innan Löginn; fannst mjer það nærri því ætla að svæfa mig á hestinum, svo var það blítt og hljótt. Datt mjer þá í hug að standa við undir höfðanum, skoða búðatóptirnar og ef vera mætti sjá svip annars hvors Helganna eða beggja eða enn annarra höfðingja frá þeirri tíð. Dauðra manna svipi auðnaðist mjer að vísu eigi að líta, heyjandi dóm við tungls-birtuna en því meira hugsaði ég um fomar tíðir og aldarhátt, sverð og skildi og önnur sóknar- og vamarvopn. Sýndist mjer fyrst, er bám-bog- amir brotnuðu blikandi í fjörunni við Löginn, sem skjaldar-rönd skjóta upp úr djúpinu og blika við tunglinu í heiði, og loks fór svo að allur Lögurinn var skaraður skjöldum í huga mjer, og ölduhljóðið, svo lágt sem það þó var, breyttist í hergný og mannamál, er þuldi mjer sögur löngu liðinna tíða. Sat ég þarna í dómhringnum framan undir höfðanum langa stund alsæll við mína eigin drauma. Loks rak hesturinn mig á fætur, hann var á heimleið; hefir honum líklega eigi getizt eins vel að töðugresinu í tóptunum, sem mjer að draumunum. Þinghöfði liggur út frá Krakalæk í Hróarstungu á Fljótsdalshéraði fram við Lagarfljót, nokkm utar en mitt á milli bæjanna Vífilsstaða að innan og Straums að utan. Þar munu vorþing efalaust hafa verið háð á dögum Helga Asbjam- arsonar, seint á lOdu öld og líklega á lltu öld; síðar hefir þingstaðrinn verið fluttur að Þingmúla í Skriðdal, en fyrst eptir að alþingi var sett, eða ef til vill áðr hefir aðalþingið verið háð undir Kiðjafelli í Fljótsdal; þar sjást nú engar tóptir, enda er þar blásið land. - Þinghöfðinn er hjerumbil 100 faðmar á lengd og 12 á breidd utan til, en smámjókkar inn eptir unz eigi verðr annað eptir en lítill jaðar emær ofan fyrir dómhringinn. Á hæð er hann um 12 álnir og meira Fljóts-megin; höfðinn er sljettur ofan og blásinn að mestu; er grjótmelr undir, en hvergi klettur; ein kolagröf er uppi á honum en engin tópt eða hringur (dómhringur). Skógar hafa verið hjer miklir til forna, en mörk með öllum Leginum, enda eru hjer kolagrafar nærri því jafnmargar þúfunum, en
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.