Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1985, Side 34

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1985, Side 34
32 MÚLAÞING viss um að þá yrði umsvifalaust lagt á hesta og mér fylgt alla leið heim, en það vildi ég ekki. Ég var búin að vera í tvo daga á Stapa og að morgni var von á Súðinni, hún var í strandferð á austurleið. Með hryggð í huga ákvað ég að fara með henni austur á Djúpavog. En heppnin var ekki búin að yfirgefa mig. Um kvöldið er hringt til mín utan frá Höfn og þar er þá kominn maður, sem ég vissi engin deili á, og segist vera að flytja ofan af Héraði og hingað suður, en þurfi að koma tveimur hestum til baka. Hann segir að ég megi sitja á þessum hestum austur að Berufirði, ef ég vilji sjá um að þeir komist þaðan að Höskuldsstöðum í Breiðdal. Hafið þið heyrt annað eins? Það var áhyggjulaus ferðalangur sem lagðist til svefns á Stapa þetta kvöld. Daginn eftir þurfti ég að nálgast hestana hans Eiríks Vigfússonar, en svo hét maðurinn. Þegar átti svo að leggja af stað í ferðina þótti hlýða að Jón á Stapa kæmi með mér austur yfir Almannaskarð. Hann kom mér í hendur góðra manna á Þorgeirsstöðum í Lóni og lét þá lofa því að fylgja mér yfir Jökulsá um kvöldið, því að ráðgert var að gista í Svínhólum. Það var auðsótt mál að fá gistingu þar. Áður en farið var að sofa kom húsmóðirin, Ragnhildur Guðmundsdóttir, að máli við mig og við gengum út í kvöldkyrrðina. Hún sagðist ætla að sýna mér blómin sín. Við gengum upp túnið, sem engan veginn er bratt, en allt á fótinn, og mér sýndist Ragnhildi veitast þetta dálítið erfitt. Hún var feit og þungfær og mér datt í hug að hún þjáðist af asma. Undir dálitlum kletti efst í túninu hafði hún gróðursett nokkur blóm. Hún hafði auðsjáanlega yndi af þessum gróðri og hafði ekki talið eftir sér erfið spor til þess að hlynna að honum. Þegar við höfðum skoðað blómin og virt fyrir okkur útsýnið gengum við heim og var þá kominn háttatími. Mér var vísað til rúms í lítilli stofu öðrumegin við bæjardyr. Þar svaf ég værum svefni, en vaknaði snemma eins og ég á vanda til þar sem ég er gestur. Ég lá og virti fyrir mér stofuna. Hún var hreinleg og látlaus, borð var þar og nokkrir stólar, myndir voru á veggjum og á stofunni voru tvennar dyr. Aðrar vissu fram á ganginn, en hinar voru á veggnum á móti glugganum. Allt í einu opnast þessar dyr og þar birtist Stefán á Hlíð og tveir menn aðrir. Þeir fóru hljóðlega og vöruðust að líta í áttina til mín og hurfu fram á ganginn. Þannig stóð á að verið var að gera vegabætur á Lónsheiði og þar var Stefán oft verkstjóri. Sjálfsagt hefur hann þá haft bækistöð sína í Svínhólum, sem er næsti bær við heiðina. Þannig hélt ég að minnsta kosti að þetta hefði verið. Eflaust hefur einhver þessara manna gengið úr rúmi fyrir mér þessa nótt.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.