Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1985, Page 205
MÚLAÞING
203
Þeir gengu gegnum varp sem er hér í blánni
og skutu bæði í varpinu og fast hjá því. Ekki
sást hér að heiman að þeir skytu æðarfugla
í varpinu, en aðra fugla sáum við þá skjóta
við varpið, og æðarfuglinn flúði úr varpinu.
Ólafur Sigurðsson á Sævarenda sá einn
hinna frönsku skjóta æðarblika í varpinu og
bera hann burt. Þetta býðst Ólafur til að
sanna með vitnisburði.
Eg sendi til þessara frönsku manna og lét
banna þeim að skjóta í mínu landi eða nærri
varpinu, og hættu þeir flestir að skjóta sem
hægt var að tala við. Líka skrifaði eg skip-
stjóranum og bannaði honum að láta skjóta
í mínu landi, og skömmu síðar linnti skot-
hríðinni og þeir sigldu burt um miðaftan.
Þenna yfirgang vil eg ekki líða bótalaust og
tilkynni yður, herra sýslumaður, þetta f
þeirri von að þér takið það fyrir.
Stakkahlíð 9. ágúst 1881
Ingibjörg Stefánsdóttir
(leiguliði)
ÖRÐUGTSAMBAND
Eins og alkunnugt er gjörir hin illa ræmda
Smjörvatnsheiði og heiðar þær, er að henni
liggja, svo mikinn aðskilnað milli hinna
nyrstu hreppa Norðurmúlasýslu (Vopna-
fjarðar og Norðurstranda eða Skeggjastaða-
hrepps) og Héraðsins eða hinna annarra
hreppa sýslunnar, að hinir nefndir 2 hreppar
geta ekki í raun réttri notið jafnréttis við
hina aðra sýslubúa, þó þeir hafi það að nafn-
inu til. Þetta hefur lýst sér ekki einungis í
því, að þessir afskekktu hreppar hafa ekki
getað haft tiltöluleg á hrif á kosning þing-
manna sinna, af því kjörfundurinn hefur
verið haldinn á Fossvöllum hinumegin heið-
arinnar, heldur einnig í því, að þeir ekki
hafa haft tiltöluleg not af styrk þeim, sem
sýslunefndin hin síðustu ár hefur veitt einum
búfræðingi til að leiðbeina mönnum í jarð-
rækt og landbúnaði. - Nú er í ár lærður
búfræðingur - Halldór Hjálmarsson - bú-
settur á Hauksstöðum hér í sveit, og hefur
gefið kost á að veita þessa leiðbeiningu í
þessari sveit og í Skeggjastaðahrepp, svo þó
annar væri á Héraðinu, þyrftu menn hér
ekki að leita til hans, enda mundi hann þar
hafa nóg að gjöra. - Og þareð hér er nú
stofnsett búnaðarfélag og Vopnafjörð og
Norðurstrandir mun mega telja að minnsta
kosti fjórðapart sýslunnar, hvort sem litið
er á fólksfjölda eða víðáttu sveitanna, finnst
oss mjög tilhlýðilegt, að þessar sveitir fái
tiltölulegan part (!4 til */3) af þeim styrk, sem
hinni heiðruðu sýslunefnd kann að þóknast
að veita í ár í framanskrifuðu augnamiði.
Leyfum vér oss því að fela hinni heiðruðu
sýslunefnd málefni þetta til þóknanlegrar
úrlausnar, og óskum, að hvort sem nokkur
búfræðingur verður fenginn eða ekki til leið-
beiningar sýslubúum austan Smjörvatns-
heiðar í búnaðarmálefnum, þá verði nefnd-
um sveitum veittur sem ríflegastur styrkur
til að geta fengið herra Halldór Hjálmarsson
til að vinna gagn í norðurhluta sýslunnar,
og það því heldur sem þessi hluti hennar
hefur alltað þessu svo mjög farið varhluta
af þesskonar leiðbeiningum.
Hofi 31 dag maímán1 1881
Guðjohnsen V. Sigfússon
RÚMFATNAÐUR OG KISTA
í tilefni af því herra Sýslumaður! að Bjarni
hreppstjóri í Norðfirði hefur skipað Þorleifi
Björnssyni á Krossanesi að leggja hald á
rúmfatnað og kistu gamla Marteins Eyríks-
sonar sem dvaldi hjá Þorleifi næst liðið
Krossmessu ár og fór nú á Krossmessu til
Björgúlfs á Karlstöðum, enn af því að jeg
gat ekki sjeð því neitt til fyrir stöðu, að áður
nefndur hreppstjóri gæti ekki alt að einu
tekið rúmfötin og kistuna af Marteini, eins
á Karlstöðum, eins og á Krossanesi, eptir
að hann var búin að öðlast leifi yðar til að
meiga gjöra það, skipaði jeg Þorleifi að
sleppa hveru tveggju.
Nú hefur Björgúlfur auglýst mjer það, að
undir eins og rúmið yrði tekið af Marteini,