Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2001, Síða 6
Kápumynd:
Mynd á kápu er að þessu sinni eftir Olöfu Björk Bragadóttur og heitir Farvegir, málverk unnið með
blandaðri tækni, 148x120 cm að stærð.
Ólöf Björk er fædd 1964 í Reykjavík. Hún stundaði myndlistarnám í Reykjavík 1984-1987. A árunum
1991- 2000 bjó hún í Suður-Frakklandi þar sem hún stundaði listnám við Ecole des Beaux Arts, auk
þess að starfa við eigin myndlist. Hún hefur haldið fjölda sýninga í Frakklandi, ýmist ein sér eða með
öðrum. Eftir að hún flutti aftur til íslands hefur hún haldið þrjár sýningar; málverkasýningu á Hótel
Héraði haustið 2000 og tvær ljósmyndasýningar síðastliðið sumar; í júní á Skriðuklaustri og aðra í júlí í
sal Islenskrar grafíkur, Hafnarhúsinu Reykjavík.
Ólöf Björk kennir myndlist við Menntaskólann á Egilsstöðum.
Höfundar efnis:
Aðalsteinn Aðalsteinsson, fæddur 1932, fyrrverandi bóndi Vaðbrekku, búsettur í Fellabæ.
Gunnar Guttormsson, fæddur 1935, frá Hallormsstað, starfsmaður iðnaðarráðuneytisins, búsettur í Rvík.
Helgi Seljan, fæddur 1934, frá Reyðarfirði, fyrrverandi alþingismaður, búsettur í Reykjavík.
Hermann Pálsson, fæddur 1921, frá Sauðanesi í Húnaþingi, fyrrverandi prófessor í Edinborg þar sem
hann er búsettur.
Hjörleifur Guttormsson, fæddur 1935, frá Hallormsstað, náttúrufræðingur og fyrrverandi alþingismaður,
búsettur í Reykjavík og í Neskaupsstað.
Ingimar Sveinsson, fæddur 1927, fyrrverandi skólastjóri Djúpavogi og búsettur þar.
Sigurður Karlsson, fæddur 1916, frá Bóndastöðum, bóndi í Laufási í Hjaltastaðaþinghá.
Sigurður Kristinsson, fæddur 1925, fyrrverandi kennari, frá Refsmýri í Fellum, búsettur í Reykjavík.
Sigurður Magnússon, fæddur 1909, frá Þórarinsstöðum í Seyðisfirði, fræðimaður, búsettur á Seyðisfírði.
Sigurður Ó. Pálsson, fæddur 1930, frá Borgarfirði eystra, fyrrverandi skólastjóri og héraðsskjalavörður, búsettur á
Akureyri.
Snorri Páll Snorrason, fæddur 1919, ffá Breiðabólstað, læknir, búsettur í Reykjavík.
Steinunn Kristjánsdóttir, fædd 1965, fomleifafræðingur í doktorsnámi, búsett í Reykjavík.
Vilhjálmur Hjálmarsson, fæddur 1913, fyrrverandi menntamálaráðherra, búsettur á Egilsstöðum og Mjóafirði.
Víkingur Gíslason, fæddur 1929, frá Skógargerði, fyrrum bóndi, búsettur í Skógargerði.
4