Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2001, Blaðsíða 8
Sigurður Ó. Pálsson
„Sveinn með lagi
komst á kjöl
Rit nefnist Skrudda og geymir sögur,
sagnir og kveðskap er safnað hefur
og skráð Ragnar Ásgeirsson, prent-
að í Hafnarfirði í þrem bindurn á árunum
1972-1974. í því er saman komið efni víðs
vegar að af landinu, nánar tiltekið úr öllum
sýslum þess svo og úr Reykjavík.
I öðru bindi ritsins er m.a. efni úr Múla-
sýslum og segir þar sitthvað frá Páli skáldi
Ólafssyni og kveðskap hans. Á bls. 170-171
er eftirfarandi fróðleikur uppi hafður:
„I útgáfu Jóns Ólafssonar af ljóðmælum
Páls eru eftirmæli Rauða-Jóns, tvær vísur af
fimm. Jón fór á sjó ásamt Sveini á Brim-
nesi, sem komst af, en Jón fórst. Þá orti
Páll:
Rauði-Jón í saltan sjó
sagður er nú dottinn.
Þarna fékk þó fjandinn nóg
í fyrsta sinn í pottinn.
Ljótur var nú líkaminn
og lítið á að græða.
En aftur sálar andstyggðin
afbragðs djöflafæða.
Hafði 'ann nærri hálfa öld
haldið sama strikið,
lokaráðin lagt á köld,
logið, rægt og svikið.
Sveinn með lagi komst á kjöl,
þeir köstuðu til hans bandi.
Dilliblautan dálítinn spöl
drógu þeir hann að landi.
Brimness-Sveinn þó bíði enn
og bindi sína þvengi.
Djöfullinn þá merkismenn
mun ei skilja lengi.“
Nokkuð er hér málum blandið. Inn í
kveðskapinn um Jón rauða og Svein á
Brimnesi hefur glutrast vísa, sem þeim er
algerlega óviðkomandi. Að auki er hér á sá
galli að vísa þessi er staka í þess orðs fyllstu
merkingu en ekki viðhengi annarra versa í
þessum „einkar hlýlegu“ eftirmælum.
Sveinn, sem stakan er kveðin um, var sonur
Bjama bónda Jónssonar á Stóra-Bakka en
síðar á Heykollsstöðum og konu hans
Bóthildar Sveinsdóttur frá Götu í Fellum.
Hann fluttist að Nesi í Loðmundarfirði
1893 og bjó ásamt Páli Ólafssyni eitt ár á
heimajörðinni, en síðan í Neshjáleigu uns
hann fluttist til Húsavíkur vorið 1896.
Á þessum misserum verður atburður sá
er hér er kveðið um og Benedikt Gíslason
frá Hofteigi lýsir í bók sinni um Pál Ólafs-
son, sem kom út í Reykjavrk 1956. Þar segir
m.a. svo á bls. 120-121:
6