Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2001, Page 131
Steinunn Kristjánsdóttir
Klaustrið á Skriðu í
Fljótsdal
Hvers vegna fomleifarannsókn?
/
jörðinni Skriðu í Fljótsdal var
starfrækt munkaklaustur af Agúst-
ínusarreglu frá lokum 15. aldar til
siðaskipta.1 Þetta klaustur á sér því stutta en
sérstæða sögu. Það var stofnað rnjög seint
miðað við önnur klaustur á Islandi og
helgað Guði almáttugum, Maríu mey og
hinu helga blóði Jesú Krists en ekki eru
önnur dæmi um slíkt hér á landi. Skriðu-
klaustur var sömuleiðis einstakt að því leyti
að þar var með vissu starfræktur svokall-
aður ytri skóli,2 þ.e. skóli fyrir þá sem lifðu
í hinum veraldlega heimi utan við þann
andlega sem var afmarkaður með veggjum
klaustranna.3
Enginn hefur dregið tilvist Skriðu-
klausturs í efa en óljóst hefur verið hvar
byggingar þess stóðu á jörðinni. Engar lýs-
ingar eru til varðveittar á húsakynnum
klaustursins frá þeim tíma sem það var
starfrækt og allar minjar þess eru horfnar
undir yfirborð jarðar, nema ein rúst kirkju
sem reist var á rústum klausturkirkjunnar.
Þessi rúst er staðsett á svokölluðu Kirkju-
túni, nokkur hundruð metrum neðan við
gamla bæjarstæðið á Skriðu.4
Ymsar getgátur hafa verið uppi um stað-
setningu klaustursins. Margir fræðimenn
telja að klaustrið hafi staðið á umræddu
bæjarstæði, um það bil þar sem Gunnarshús
stendur nú. Fjarlægðin á milli Kirkjutúns-
ins, þar sem klausturkirkjan á að hafa stað-
ið, og bæjarstæðisins hefur þó valdið heila-
brotum hvað þetta varðar, ekki síst vegna
þess að þar á milli er hamrabelti.5 Klaustur-
kirkjan hefði samkvæmt venju átt að vera
hluti af klausturhúsunum.
Nú er í undirbúningi verkefni sem felur
1 íslensktfornbréfasafn VII:309-310; Helgi Hallgrímsson 1988:20-21.
2 Til aðgreiningar er rétt að benda á það hér að í öðrum íslenskum klaustrum voru reknir skólar sem eingöngu voru ætlaðir þeim sem
gengið höfðu í þau (Gunnar F. Guðmundsson 2000:221).
^ Helgi Hallgrímsson 1988:20; Gunnar F. Guðmundsson 2000:221-223, 324.
^ Helgi Hallgrímsson 1999:34-35.
** Bruun 1974:163; Jón Jónsson 1897:22; Helgi Hallgrímsson 1989:38-39.
129