Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2001, Side 146
Múlaþing
Fjölskyldan í Merkijremri röir.f.v. Una Kristín Arnadóttir heldur á Björgu, Stefán, Þórdís síðar Ijósmóðir
á Borgarfirði, Jón, Sigurður heldur á Fanneyju. Aftari röð: Fjóla, Lilja, Jóna Sigurlaug og Einar. Eigandi
myndar: Þórdís Sigurðardóttir.
um skothríð frá báðum ströndum Borgar-
fjarðar getur ekki hafa verið að ræða því að
eina vopn í byggðarlaginu, sem nothæft var
til þvílíks hemaðar, var í höndum Sigurðar
Einarssonar, þótt eigandi þess byggi austan
fjarðar.
Að sjálfsögðu hefur mönnum orðið
margrætt um atburð þennan í Bakka-
gerðisþorpi, sem annars staðar í byggðar-
laginu. Getur það verið að í bamsminni hins
mæta manns, Guðmundar frá Lundi, hafi
þegar frá leið blandast saman minningar um
viðburðinn og bollaleggingar manna í
þorpinu um viðbrögð gegn athæfi vágests-
ins í firðinum?
Sigurður Einarsson, sem stuggaði við
enska togaranum, var lengi í Geitavík
framan af árum. Hann bjó síðar í Merki
sem byggt var úr Geitavíkurlandi. S’gurður
var, auk þess að vera skytta góð, velvirkur
hagleiksmaður. Kona hans var Una Ama-
dóttir ísakssonar í Hólalandshjáleigu í
Borgarfirði, annáluð fyrir dugnað og þrek.
Þau eignuðust mörg börn, myndar- og
dugnaðarfólk. Sigurður missti heilsu og
andaðist fimmtugur að aldri.
144