Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2001, Page 150
Múlaþing
Karlmannsúrfesti úr mannshári, sjá nr. 6 á bls. 147. Myndað með leyfi Minjasafns Austurlands.
Bjarni frá Krossi, Guðfinna frá Set-
bergi og börn þeirra
Maður hét Bjarni Magnússon, f. á
Hryggstekk í Skriðdal um 1770 og bjó á
Krossi í Fellum 1813 - 1827, kvæntur Guð-
rúnu Bessadóttur (10985) frá Ormarsstöð-
um í Fellum og var síðari maður hennar.
Voru tvö böm hennar á heimilinu ásamt
syni hans er hét Bjarni. Öll bömin voru
skráð Bjamabörn. Fyrri maður Guðrúnar
hét Bjami Rafnsson og lést fyrir 1810.
Bjarni Magnússon og Guðrún bjuggu 3 ár á
Eyvindará áður en þau fluttust í Kross.
Móðir Bjama (14002) Bjamasonar hét
Helga (14001), f. um 1773 Einarsdóttir
Jónssonar (13982) á Horni í Nesjum og
Þórunnar Jónsdóttur er kölluð var Horna-
fjarðarsól. Helga hefur komið í Fell um
1800. Er vinnukona á Skeggjastöðum 1801,
28 ára. Bjami sonur hennar fæddist á Orm-
arsstöðurm 1806. Helga giftist Nikulási
Gíslasyni á Dalhúsum og áttu þau soninn
Einar, sem síðar bjó á Gíslastöðum á Völl-
um. Bjami var fyrstu árin með móður sinni.
Vorið 1828 hóf Bjami Bjarnason búskap
á hálflendunni á Krossi. Faðir hans var hjá
honum. Hafði bústýru tvö ár. Á hinni
hálflendunni bjó stjúpsystir hans, Guðrún
Bjarnadóttir (10997) og maður hennar
Þórður (11413) Árnason sunnan af Beru-
fiarðarströnd. Guðrún dó 1841 en Þórður
1843.
Hinn 3. febrúar 1829 fæddist að Krossi
stúlka og var skírð Kristbjörg. Hún dó viku-
gömul. Bjami Bjamason var faðirinn en
móðirin vinnukona á hinu búinu, Hróðný
Sigurðardóttir. Hún fór að Gvendamesi í
Stöðvarfirði um vorið. Bjami Bjarnason
hætti búskap og fór að Setbergi vorið 1830
en faðir hans var áfram á Krossi hjá
stjúpdóttur sinni.
í landi jarðar á Krossi eru ásar, háir með
jökulfægðum klöppum og klettum en í
sundum eru mýrar, tjarnir og vötn með
148