Gerðir kirkjuþings - 2008, Page 23

Gerðir kirkjuþings - 2008, Page 23
 23 lýsingar kirkna og réttinda þeirra, nýbyggingar prestsbústaða, hugsanlegt nýtt Kirkjuhús, úrlausn Óbyggðanefndar um mörk lands Valþjófsstaðar og úrskurð matsnefndar um endurgjald fyrir vatnsréttindi vegna Kárahnjúkavirkjunar. Enn fremur margvísleg mál er varða tilteknar fasteignir í eigu Kirkjumálasjóðs. Má vísa til kafla skýrslu þessarar um fasteignir vegna frekari upplýsinga um störf Kirkjuráðs að málefnum fasteigna Kirkjumálasjóðs. Starfsmenn Kirkjuráðs Endurskoðað stjórnkerfi fasteigna var tekið upp í ársbyrjun 2008 og þá tók einnig til starfa stjórn prestssetra, sbr. starfsreglur um prestssetur nr. 1027/2007. Stjórn- kerfisbreyting þessi hafði töluverð áhrif á starfsmannahald og var starf framkvæmdastjóra Prestssetrasjóðs formlega afnumið um áramót. Ákveðið var að fyrstu þrír mánuðir ársins yrðu nýttir til aðlögunar og nýtt fyrirkomulag með nýjum eða breyttum starfslýsingum að fullu innleitt 1. apríl 2008. Ráðinn var verkefnisstjóri lögfræðimála til starfa í ársbyrjun, Anna Guðmunda Ingvarsdóttir lögfræðingur, einkum á fasteignasviði. Um nýtt starf er að ræða. Verksvið er margvísleg samningsgerð, þ.m.t. gerð haldsbréfa vegna prestssetra og ýmiss konar hagsmunagæsla og samskipti við stjórnvöld vegna fasteigna Kirkjumálasjóðs. Verkefnis- stjórinn undirbýr fundi stjórnar prestssetra með öðrum verkefnisstjórum sem að því koma og fylgir eftir ákvörðunum stjórnarinnar. Þá starfar á fasteignasviði verkefnisstjóri utanhússframkvæmda, skipulagsmála og ráðgjafarsviðs, Höskuldur Sveinsson arkitekt. Verksvið hans samkvæmt nýrri skipan er umsjón verkefna er lúta að framkvæmdum utanhúss og nýbyggingum á vegum Kirkju- ráðs og stjórnar prestssetra, ýmis samskipti við stjórnvöld, hönnuði og verktaka, svo og skipulagsmál. Enn fremur annast verkefnisstjórinn undirbúning funda bygginga- og listanefndar og undirbýr úthlutanir úr Jöfnunarsjóði sókna ásamt verkefnisstjóra sókna á Biskupsstofu. Einnig annast verkefnisstjórinn ráðgjöf til sókna vegna verklegra framkvæmda. Verkefnisstjóri innanhússframkvæmda á fasteignasviði er Kristín Mjöll Kristinsdóttir innanhússarkitekt. Verkefnisstjórinn annast verklegar framkvæmdir innanhúss í prests- bústöðum og öðru íbúðar- og skrifstofuhúsnæði á vegum Kirkjuráðs, ræður iðnaðar- menn/verktaka til verka og fylgist með verklegum framkvæmdum. Verkefnisstjórinn sér enn fremur um innkaup á innréttingum og öðrum búnaði eftir þörfum. Verkefnisstjóri landmælinga í 25% starfshlutfalli á fasteignasviðinu, Sigurgeir Skúlason landfræðingur, annast gerð afstöðumynda og hnitasettrar afmörkunar lóða umhverfis kirkjur, kirkjugarða, íbúðarhús á prestssetursjörðum og aðra eignarhluta sem ákveðið er að afmarka með sjálfstæðum hætti. Um er að ræða samstarfsverkefni með Kirkjugarðaráði. Jóhannes Ingibjartsson byggingatæknifræðingur, formaður bygginga- og listanefndar, hefur starfað hjá Kirkjuráði í hlutastarfi að ráðgjöf fyrir sóknarnefndir sem standa í verklegum framkvæmdum, gerð kostnaðaráætlana o.fl., en lét af því starfi 30. september 2008 og hafa þau verkefni færst til verkefnisstjóra ráðgjafarsviðs, sbr. hér að framan. Jóhannes mun þó áfram verða formaður bygginga- og listanefndar.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.