Gerðir kirkjuþings - 2008, Side 30

Gerðir kirkjuþings - 2008, Side 30
 30 5. mál. Starfsreglur um þjóðmálanefnd Starfsreglur þessar voru birtar í B-deild Stjórnartíðinda og gefnar út á vef kirkjunnar. Kosið var til nefndarinnar á Kirkjuþingi 2007. Aðalmenn voru kosnir Sigríður Anna Þórðardóttir, fv. alþingismaður og ráðherra, formaður; sr. Anna Sigríður Pálsdóttir, sóknarprestur; sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur; Hallgrímur Jónasson, fv. forstjóri Iðntæknistofnunar og formaður sóknarnefndar Víðistaðasóknar, Hafnarfirði; og Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur. Varamenn voru kosnir Einar Skúlason, forstöðumaður Alþjóðahúss; Eva María Jónsdóttir, dagskrárgerðarmaður hjá RÚV; sr. Sigrún Óskarsdóttir, sóknarprestur; sr. Geir Waage; og Ævar Kjartansson, dagskrárgerðarmaður. Nefndin hefur verið að störfum og var í undirbúningi að halda málþing um fordóma í júní sl. um kirkjuna, fordóma og innflytjendur/útlendingaótta, en því var frestað til hausts. Formaður nefndarinnar baðst lausnar vegna brottflutnings af landinu og Kirkjuþing 2008 þarf að kjósa nýjan formann. Samkvæmt starfsreglunum leggur Biskupsstofa nefndinni til ritara. 6. mál. Starfsreglur um breyting á ýmsum starfsreglum Starfsreglur þessar voru birtar í B-deild stjórnartíðinda og gefnar út í lagasafni á vef kirkjunnar. Einkum var um að ræða tæknilegar breytingar eða orðalagsbreytingar og aðlögun að breyttu laga- og starfsregluumhverfi á síðustu árum. 7. mál. Þingsályktun um skipun nefndar til að endurskoða löggjöf um Þjóðkirkjuna Kirkjuráð skipaði þriggja manna nefnd til að endurskoða kirkjulöggjöfina. Formaður hennar er Pétur Kr. Hafstein, forseti Kirkjuþings. Aðrir nefndarmenn eru sr. Kristján Björnsson kirkjuþingsmaður og Bryndís Helgadóttir, lögfræðingur í dóms- og kirkju- málaráðuneytinu, skipuð samkvæmt tilnefningu ráðherra. Með nefndinni starfa Hjalti Zóphóníasson skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og Ragnhildur Benediktsdóttir skrifstofustjóri Biskupsstofu. Nefndin hefur skilað áfangaskýrslu og drögum að frumvarpi til nýrra þjóðkirkjulaga til kynningar á hugmyndum nefndarinnar – sjá 4. mál Kirkjuþings 2008. 8. mál. Þingsályktun um Þjóðkirkjuna og staðfesta samvist Frumvarp til laga um breyting á lögum um staðfesta samvist nr. 87/1996 varð að lögum á vorþingi 2008 og öðluðust breytingalögin gildi 27. júní 2008. Prestum og forstöðumönnum skráðra trúfélaga er hafa vígsluheimild skv. 17. gr. hjúskaparlaga, nr. 31/1993, er heimilt að staðfesta samvist. Að tilhlutan biskups Íslands hefur verið gengið frá formi vegna staðfestingar samvistar og er vísað til tillögu til þingsályktunar um drög að samþykktum um innri málefni kirkjunnar í 6. máli Kirkjuþings 2008. Kirkjuþing 2007 lagði í ályktun sinni áherslu á að frelsi presta í þessum efnum verði virt.

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.