Gerðir kirkjuþings - 2008, Síða 41
41
Stjórn prestssetra
Hinn 1. janúar 2008 tók til starfa stjórn prestssetra skv. starfsreglum um prestssetur nr.
1027/2007. Á sama tíma var Prestssetrasjóður formlega lagður niður. Hlutverk stjórnar
prestssetra er að fara með almennt fyrirsvar vegna prestssetra, fara með málefni
prestssetra sem falla ekki undir Kirkjuráð og fara með stjórn prestssetra gagnvart prestum
skv. ábúðarlögum, húsaleigulögum og öðrum lögum. Þá útbýr stjórn prestssetra
fjárhagsáætlun og tekur ákvarðanir um meiriháttar viðhald á prestssetrum. Um skipan
stjórnarinnar má lesa fyrr í þessari skýrslu. Stjórnin fundar að jafnaði mánaðarlega, og
yfirleitt á Biskupsstofu. Fasteignasvið leggur stjórn prestssetra til starfsfólk en Anna
Guðmunda Ingvarsdóttir lögfræðingur, verkefnisstjóri lögfræðimála á fasteignasviði
Kirkjuráðs, hefur fyrirsvar fyrir stjórnina í samskiptum við einstaklinga, stjórnvöld og
aðra.
Tillögur stjórnar prestssetra um nýbyggingar
Stjórn prestssetra gerði tillögu að þremur nýbyggingum prestssetra, á Sauðárkróki, í
Stafholti og á Kolfreyjustað. Í ljósi aðstæðna í efnahagslífinu ákvað Kirkjuráð á fundi
sínum 16. október 2008 að fresta öllum nýframkvæmdum.
VII. Stofnanir á vegum Kirkjuráðs
Stofnanir og nefndir skila skýrslum í Árbók kirkjunnar eins og fyrr hefur verið greint frá
og er vísað þangað til nánari greinargerða um starfsemi þeirra. Sú umfjöllun sem hér fer á
eftir er til fyllingar því eða sérstakrar áréttingar á atriðum sem Kirkjuráð vill vekja athygli
Kirkjuþings á.
Skálholt
Kirkjuráð ber ábyrgð á Skálholtsstað, sbr. lög nr. 32/1963. Nú hefur verið unnið eftir nýju
skipulagi á starfsemi Skálholts í tvö ár og er Skálholtsskóli og Skálholtsstaður rekinn sem
ein rekstrareining. Framkvæmdastjóri er Hólmfríður Ingólfsdóttir og rektor dr. Kristinn
Ólason. Unnið hefur verið að því að efla starfsemi Skálholtsskóla og er óhætt að fullyrða
að góður árangur hafi náðst í því efni. Dagskráin er bæði fjölbreytt og metnaðarfull.
Aðsókn hefur verið góð í flesta dagskrárliði. Má nefna kyrrðardagastarfið, sem einnig
felur í sér lokaða kyrrðardaga fyrir valdar starfsstéttir, heilsudaga, fermingar- og fræðslu-
námskeið, prédikunarnámskeið, þrettándaakademíu, fjölmörg málþing og ráðstefnur af
ýmsum stærðargráðum. Fjölmennasta ráðstefnan á þessu ári var með 120 þátttakendur. Þá
hefur verið afar farsælt samstarf um Sumartónleikana í Skálholti með góðri aðsókn, en
auk þeirra má nefna fjölmarga aðra tónlistarviðburði. Sjá nánar um einstaka viðburði á
heimasíðu Skálholtsstaðar og í skýrslu rektors í Árbók kirkjunnar.
Aðsókn að Skálholtsstað hefur aukist jafnt og þétt og hafa tekjur staðarins aukist nokkuð.
Áætlað er að allt að 260 þúsund manns sæki staðinn árlega innan fárra ára og því er margt
gert til að bæta þjónustu við ferðamenn og ráðstefnugesti. Í þessari þróun felast ný
sóknarfæri. Nú er lokið öllum undirbúningi vegna nýbyggingar í Skálholti en
framkvæmdinni hefur verið frestað um sinn vegna óvissu um fjármögnun.
Hilmar Örn Agnarsson, organisti, lét af störfum á árinu þegar starfið var lagt niður.
Tónlistarmál staðarins eru til umfjöllunar hjá stjórn Skálholts.