Gerðir kirkjuþings - 2008, Side 44

Gerðir kirkjuþings - 2008, Side 44
 44 Nefndarálit Á fund allsherjarnefndar komu herra Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands, Vilborg Odds- dóttir félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, Guðlaug Magnúsdóttir forstöðumaður Fjölskylduþjónustu kirkjunnar, Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, verkefnisstjóri á Bisk- upsstofu og sr. Ólafur Jóhannsson formaður Prestafélags Íslands. Allsherjarnefnd þakkar skýrslu Kirkjuráðs. Skýrslan ásamt Árbók kirkjunnar 2007 endur- speglar blómlegt starf Þjóðkirkjunnar. Allsherjarnefnd leggur áherslu á að kynning mála á Kirkjuþingi sé efld heima í héraði. Nefndin tekur undir þær hugmyndir Kirkjuráðs að haldnir séu aukahéraðsfundir eða leiðarþing að hausti til kynningar á málum Kirkjuþings. Beinir nefndin því ennfremur til Kirkjuráðs að það sendi próföstum orðsendingu þessa efnis fyrir héraðsfundi vorið 2009. Nefndin fagnar því hve vel hefur verið haldið á fjármálum kirkjunnar og varðveislu sjóða á tímum fjármálauppnáms. Jafnframt minnir nefndin á nauðsyn þess að gæta aðhalds án þess að það komi niður á innra starfi Þjóðkirkjunnar. Þá styður allsherjarnefnd þá ákvörðun Kirkjuráðs að fresta nýframkvæmdum í Skálholti í ljósi breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu. Allsherjarnefnd fagnar því að unnið hafi verið að endurskoðun þjóðkirkjulaga með áherslu á aukið sjálfstæði Þjóðkirkjunnar. Allsherjarnefnd fagnar samstarfi Tónskólans við Listaháskólann og væntir mikils af því. Allsherjarnefnd telur tímabært að hefja endurskoðun á Stefnu- og starfsáherslum Þjóðkirkjunnar 2004-2010 í ljósri breyttra aðstæðna í íslensku samfélagi sem vísast munu hafa mikil áhrif á kirkjulegt starf á næstunni. Allsherjarnefnd hefur fengið skýrslu þjóðmálanefndar til umfjöllunar og tekur undir lokaorð skýrslunnar þess efnis að mörg mikilvæg verkefni bíði nefndarinnar og væntir allsherjarnefnd mikils af störfum hennar í framtíðinni. Kirkjuþing 2007 ályktaði að metin yrði staða og starfshættir fjölskylduþjónustu kirkjunnar og sérstaklega yrði skoðað hvernig efla mætti þjónustu við landsbyggðina. Nefnd sem skipuð var til að fjalla um málið komst að þeirri niðurstöðu í skýrslu sinni að útvíkka þyrfti þjónustu fjölskylduþjónustu kirkjunnar til muna og benti á ýmsar hugmyndir þar að lútandi. Allsherjarnefnd telur að efla megi þjónustuna við landsbyggðina með víðtækari tengingu og samstarfi við presta, djákna og annað sálgæslumenntað fólk. Allsherjarnefnd tekur undir það með nefnd um árangursmat í kirkjustarfi að mikilvægt sé fyrir söfnuði sem og Þjóðkirkjuna í heild að hafa skýr markmið í starfi og þjónustu og að meta reglulega gæði og árangur starfs. Nefna má könnun fyrir fermingarbörn og foreldra, sem unnin var og getur verið gagnleg til frekari þróunar í fermingarstörfum.

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.