Gerðir kirkjuþings - 2008, Side 67

Gerðir kirkjuþings - 2008, Side 67
 67 Í 2. mgr. er ákvæði efnislega samhljóða 3. mgr. 26. gr. núgildandi laga. Áréttað er að einstökum ákvörðunum Kirkjuráðs á framkvæmdasviði kirkjulegrar stjórnsýslu verði ekki skotið til Kirkjuþings til endanlegrar ákvörðunar. Einstakir kirkjuþingsmenn geta hins vegar haft frumkvæði að því að málið verði rætt á Kirkjuþingi, sem gæti þá bæði ályktað um það eða vottað kirkjuráðsmönnum, einum eða fleirum, vantraust vegna málsmeðferðarinnar, sbr. 1. mgr. Um 15. gr. Greinin er efnislega samhljóða 1. mgr. 27. gr. núgildandi laga. Vísað er til athugasemda við 11. gr. frv. um aukinn þátt forseta Kirkjuþings við undirbúning þingsins og eftirfylgd samþykkta þess. Um 16. gr. Greinin er efnislega samhljóða fyrri ml. 4. mgr. 27. gr. núgildandi laga og þarfnast ekki skýringar. Lagt er til að l. nr. 22/1993 um Skálholtsskóla falli brott, en þá gæti Kirkjuþing sett starfsreglur um skólahald í Skálholti skv. almennri heimild í 49. gr. frv. Umtalsverðar breytingar hafa orðið á rekstri skólans og fjárhag. Rekstur skóla og staðar hefur verið sameinaður. Ekki er lengur um að ræða sérgreind framlög á fjárlögum til skólans eins og lögin gera ráð fyrir, heldur eru framlögin nú á grundvelli samnings ríkis og kirkju um kirkjueignir og prestssetur, sbr. l. 82/2007 um breyting á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar nr. 78/1997. Um 17. gr. Greinin þarfnast ekki skýringar. Um 18. gr. Greinin er samhljóða 1. mgr. 6. gr. núgildandi laga. Til þess er ekki vilji innan Þjóð- kirkjunnar að skipta landinu í fleiri biskupsdæmi en biskuparnir í Skálholti og á Hólum eru biskupi Íslands til aðstoðar í biskupsdæminu, sbr. 25. gr. frv. Um 19. gr. Greinin er efnislega samhljóða 2. mgr. 6. gr. núgildandi laga. Lagt er til að í starfsreglum frá Kirkjuþingi verði unnt að kveða nánar á um tilhögun yfirstjórnar Þjóðkirkjunnar. Þá þykir rétt að taka fram að Biskupsstofa sé embættisskrifstofa biskups Íslands. Um 20. gr. 1. mgr. er samhljóða 7. gr. og 9. gr. núgildandi laga að öðru leyti en því að lagt er til að skipunartími biskups í embætti verði ótímabundinn. Heimild til þess er að finna í 1. mgr. 23. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þar sem segir að embættismenn skuli skipaðir tímabundið, til fimm ára í senn, nema annað sé tekið fram í lögum. Veigamikil rök hníga að því að biskup Íslands gegni embætti sínu án þeirrar takmörkunar sem felst í framangreindu lagaákvæði, eins og starfsbræður hans í systurkirkjunum í nálægum löndum. Þess er einkum að gæta að biskup Íslands er trúarleiðtogi Þjóðkirkjunnar og biskupskjör liggur að baki skipunar hans í embætti. Í 2. mgr. er nýmæli sem lýtur að því að Kirkjuþing sem æðsta valdastofnun Þjóðkirkjunnar getur með auknum meirihluta þingfulltrúa kallað fram biskupskjör við

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.