Gerðir kirkjuþings - 2008, Síða 69

Gerðir kirkjuþings - 2008, Síða 69
 69 Um 26. gr. Ákvæði 1. mgr. er efnislega samhljóða 2. málsl. 16. gr. núgildandi laga en hér er þó lagt til að í stað embættisheitisins vígslubiskup verði biskuparnir tveir kenndir við hina fornu biskupsstóla án þess þó að vald- og verksviði þeirra verði breytt. Þá þykir rétt að árétta að þeir hafi tilsjónarvald í umboði biskups Íslands enda er biskupsdæmið eitt á Íslandi, sbr. 1. mgr. 6. gr. núgildandi laga og 18. gr. frv. Í 2. mgr. er mælt fyrir um biskupafund en ákvæði um hann er að finna í 19. grein núgildandi laga. Þar segir að biskupafundur skuli m.a. búa þau mál er varða kenninguna, helgisiði og helgihald í hendur Prestastefnu og gera tillögur um skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma til Kirkjuþings. Hér er hins vegar lagt er til að ákvæði um verkefni biskupafundar verði felld úr lögum og Kirkjuþingi fengið vald til að kveða á um þau. Það er í samhljómi við meginmarkmið þessa frumvarps um einföldun kirkjulöggjafar og flutning ákvarðana um innri málefni kirkjunnar úr almennum lögum í starfsreglur frá Kirkjuþingi. Þá eykur það svigrúm Kirkjuþings til þess að flytja eftir atvikum fleiri verkefni til biskupafundar en nú er raunin. Mikilvægt er þó að hafa í huga að biskupafundur telst ekki til kirkjulegra stjórnvalda er tekið geti bindandi ákvarðanir. Hann er vettvangur fyrir biskup Íslands til að ráðgast við umboðsmenn sína við stjórn biskupsdæmisins og og eftir atvikum undirbúa tillögugerð til Kirkjuþings. Um 27. gr. Ákvæði 1. og 2. mgr. er efnislega samhljóða 15. gr. núgildandi laga um annað en vanhæfi biskups Íslands. Í 3. mgr. er fjallað um þá aðstöðu er biskup Íslands verður vanhæfur til meðferðar einstaks máls sem undir hann ber að lögum. Þá er svo fyrir mælt að sá biskup sem eldri er að biskupsvígslu skuli fara með málið nema biskup Íslands eigi sjálfur sérstakra og verulegra hagsmuna að gæta. Þegar þannig stendur á verða næstu undirmenn hans einnig vanhæfir skv. 5. tl. 1. mgr. 3. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. lög nr. 49/2002. Á þessa reglu myndi ekki reyna verði biskup Íslands vanhæfur til meðferðar máls í Kirkjuráði ef sú tilhögun verður tekin upp að kjósa sérstakan varaforseta Kirkjuráðs, sbr. 13. gr. frv. Verði báðir biskuparnir vanhæfir til að leysa úr máli þarf einhvern aðila til að greiða úr þeirri stöðu sem þá kemur upp. Ekki fer vel á því að slíkt komi til kasta Kirkjuráðs sem er fjölskipað stjórnvald undir forsæti biskups Íslands. Hér er lagt til að forseti Kirkjuþings kveðji einhvern þann til að sinna málinu sem er kjörgengur til biskupsembættis, sbr. 20. gr. Um 28. gr. Greinin er efnislega samhljóða 48. gr. núgildandi laga og þarfnast ekki skýringar. Um 29. gr. Ákvæði 1.-3. mgr. eru efnislega samhljóða 49. gr. núgildandi laga að öðru leyti en því að Kirkjuþingi verður ætlað að kveða á um það hvernig sóknir tengjast og hvernig hagað verði rétti og skyldum sóknarmanna. Í 50. gr. núgildandi laga er ákvæði um að Kirkjuþing setji starfsreglur um skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma og er því haldið í 4. mgr. þessarar greinar. Til viðbótar er ákvæði um að Kirkjuþing setji starfsreglur um leysing á sóknarbandi og um aðkomu óstaðbundinna safnaða að Þjóðkirkjunni. Jafnframt er lagt til í 51. gr. frv. að lög
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.