Gerðir kirkjuþings - 2008, Page 95
95
málsins innan ríkisstjórnar og á Alþingi. Frumvarpið var kynnt úti í prófastsdæmunum í
þinghléinu og margar góðar ábendingar komu fram sem unnið hefur verið úr. Kirkjuþing
hefur nú í dag borið gæfu til að leggja lokahönd á þetta mál af sinni hálfu. Það væri
verðugt minningarmark um hálfrar aldar afmæli Kirkjuþings að Alþingi veitti brautar-
gengi þessu máli, sem styrkir svo mjög og eflir stöðu Kirkjuþings og raunar sjálfstæði og
sjálfsákvörðunarrétt Þjóðkirkjunnar.
Ég vil að lokum færa þingheimi einlægar þakkir fyrir góðar samverustundir, málefnalegar
umræður og vönduð vinnubrögð í hvívetna. Ég vil ekki síst þakka löggjafarnefnd
Kirkjuþings og formanni hennar, séra Þorbirni Hlyni Árnasyni, greinargóða umfjöllun um
frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga og vinnu að kynningu þess og endanlegri gerð. Ég
þakka einnig og ekki síður starfsfólki þingsins fyrir eljuverk þess í aðdraganda þingsins
og á þinginu sjálfu. Það er mikið gangverk, sem slíku þingi fylgir, og í því góða
gangverki hafa engir brestir orðið heldur hefur þetta dugmikla starfsfólk gert okkur
þingfulltrúum kleift að gegna trúnaðarstörfum okkar á Kirkjuþingi af fyllstu einlægni og
samviskusemi. Þá þakka ég enn húsráðendum í þessu húsi og starfsfólki þess fyrir hlýjar
móttökur og þann góða aðbúnað, sem okkur hefur hér verið búinn eins og á fyrri þingum.
Ég óska öllum góðrar heimferðar og heimkomu og læt í ljós þá ósk og von að vandaðra
verka á þessu Kirkjuþingi megi lengi sjá stað í öflugu starfi Þjóðkirkjunnar.
Kirkjuþingi 2008 er slitið.