Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2004, Side 31

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2004, Side 31
29 Herr, & Nihlen, 1994; Cochran-Smith & Lytle, 1999). Samkvæmt Cochran-Smith og Lytle (1999) þróuðust þær frá hugmyndum um að kennurum sé nauðsynlegt að taka þátt í samræðum við aðra kennara um kennslu byggða á eigin reynslu í þá átt að þeim sé nauðsynlegt að geta sett fram eigin kenningar um nám og kennslu sem byggja á eigin starfi. Jafnvel þó margir fræðimenn viðurkenni að kennarinn sé lykilmaður þess sem gerist í skólastofunni þá er sjaldgæft að þekking þeirra sé virt eða hennar sé getið í rannsóknum. Ekki er oft sóst eftir hugmyndum eða sjónarhorni þeirra en á sama tíma er þess vænst að þeir viðurkenni og taki tillit til niðurstaðna rannsókna annarra (Apple & Jungck, 1992; Goodson, 2000; McNamara, 1994; Zeichner. 1994). Að mati Van Manen (1999) gefa kennara- rannsóknir kennurum tækifæri til að skoða og hugsa um starf sitt út frá kennslu-fræðilegu sjónarhorni. Rannsóknarverkefnin verða til þegar leitað er lausna í skólaumhverfinu með persónulegum en jafnframt faglegum spurningum. Rannsókn- imar örva samræður um það sem gerist í skólastofunni og draga ómeðvitaða þekkingu kennara upp á yfirborðið. Um leið gefa þær kennurum tækifæri til að ígrunda eigið starf á gagnrýninn hátt, leita að svörum sem skipta máli í daglegu amstri og skapa vettvang til virkrar þátttöku í þróunarverkefnum. Markmið kennararannsókna er að hafa áhrif á breytingar í skólastofunni, virkja kennara til að setja fram nýjar hugmyndir, framkvæma og um leið að skilja betur eigin þekkingu. Santkvæmt þessu þá geta rannsóknir sem gerðar eru af starfandi kennurum gefið kennurum tækifæri til að koma skoðunum sínum og reynslu á framfæri og fært okkur einstaka þekkingu um nám og kennslu. Loughran (1999) og Kincheloe (1991) telja að það skipti miklu máli að rannsóknir séu aðgengilegar kennurum en jafnframt að þær nýtist þeim. Ef þær geri það ekki þá munu kennarar ekki sýna niðurstöðum þeirra áhuga eða veita þeim athygli. Kincheloe (1991) telur jafnframt að kennararannsóknir geti virkjað kennara til þátttöku í þróun skólamála og færi þeim einnig færni og tækifæri til að ígrunda eigið starf á gagnrýninn máta og bera saman tengsl kenninga í félags- og menntunarfræðum við það sem gerist í skólastofunni. Þrátt fyrir að kennarar séu þess ekki alltaf meðvitaðir þá er í raun ekki hægt að kenna án þess að byggja á kenningum um nám og kennslu (Handal & Lauvás, 1982; Handal & Lauvás, 1987). Segja má að áskorunin til kennara felist í því að draga fram í dagsljósið þann fræðilegan bakgrunn sem daglegar framkvæmdir þeirra byggja á. Kennararannsóknum er hægt að líkja við hringferli sem byggir á þeirri hugmynd að hafist sé handa við eigin framkvæmd, hún ígrunduð á gagnrýninn hátt, metin, áætlun endurskoðuð og að lokum fer fram ný framkvæmd byggð á þeirri endurskoðuðu. Þetta hringferli eða spírall fær kennarann til að gera sér grein fyrir, skilja og umbreyta þeirri einstöku þekkingu sem daglega verður til í skólastofunni (Whitehead, 1993). Aðferðin er leið kennara til að sjá í nýju ljósi hvernig þeirtengjast hver öðrum jafnt sem hinu stærra skólasamfélagi. Þessi meðvitund getur verið aflgjafi og fróðleikur í senn og skapað samræður sem vakna vegna spurninga sem verða til úr þeirra eigin reynsluheimi í skólastofunni (Hafdís Guðjónsdóttir, 2000). Markmið kennararannsókna er að rannsaka þær uppeldis- og kennslufræðilegu kenningar sem hafa áhrif á framkvæmdina og benda á kennslu sem ferli þar sem kenningar eru settar fram, gagnrýndar og nýjar þróaðar. Ýmsir fræðimenn leggja áherslu á að samvinna kennara og fræðimanna og kennara innbyrðis skipti miklu máli og að getan til að breyta liggi f henni (Bodone, 2004). Þeir segja m.a. að það að skilja nám og kennslu sé ekki einstaklingsvinna, heldur byggist það á virkum samskiptum fagmanna og tækifærum til að deila reynslu sinn. Því meiri samskipti sem kennarar eiga og því meira sem þeir ígrunda starf sitt þeim mun meiri möguleika eiga þeir á að bæta það sem þeim fínnst mikilvægast (Fullan & Stiegelbauer, 1991; Hopkins et al., 1994; Loughran & Northfield, Tímarit um menntarannsóknir, 1. árgangur 2004
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232
Side 233
Side 234
Side 235
Side 236
Side 237
Side 238
Side 239
Side 240
Side 241
Side 242
Side 243
Side 244
Side 245
Side 246
Side 247
Side 248
Side 249
Side 250
Side 251
Side 252
Side 253
Side 254
Side 255
Side 256
Side 257
Side 258
Side 259
Side 260

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.