Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2004, Page 98

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2004, Page 98
96 og kennslu sem hann byggði á þekkingu og aðferðafræði frumrannsókna í atferlisgreiningu. PT byggir á arfleifð Skinners og er hvort tveggja í senn aðferð til rannsókna, kennslu og þjálfunar. Þrátt fyrir nafnið og þjálfunarþáttinn þá er PT frekar hnitmiðuð aðferð til að mæla, meta og spá fyrir um færni á hlutlægan hátt, en kennsluaðferð í hefðbundinni merkingu þess orðs. I greininni var lagt upp með spurninguna hvernig kennsla geti verið rannsókn? Því er haldið fram að svarið felist í PT og í því sambandi var helstu vörðum tækninnar lýst. Vörðurnar eru fjórar: Skynjunar- og verkleiðir, vísitölur, þarfagreining og staðlað hröðunarkort. Með umfjölluninni voru leidd að því rök að kennarar sem öðlast haldbæra þekkingu á, og fljúgandi færni í að beita PT í starfi, ráði þar með yfir öflugri tækni til að klæðskerasníða kennsluna eftir þörfum hvers nemanda, og sýna fram á með ótvíræðum hætti hver árangur hennar er. Einnig var sagt frá aðferðafræði frumrann- sókna í atferlisgreiningu sem er sérsniðin til að svara spurningum um athafnir einstaklinga og samspil þeirra við umhverfið. Sérstaklega var undirstrikað hvernig PT vörðurnar tengjast lykilstoðum atferlisgreiningar. Stoðirnar eru þrjár: Mælitæki sem skráir og sýnir sambönd mælieininganna - hinna virku athafna sem mældar eru með mælistikunni tíðni -fjölda skipta á tímaeiningu. Þessar lykilstoðir eru forsenda þess að hægt er að greina, prófa og spá fyrir um athafnir einstaklinga með þeim kerfisbundna hætti sem almennt kallast vísindalegur. Fjallað var um mikilvægi þess að greina námsefnið í frumeindir sínar og raða þeim síðan eftir þyngd með þá einföldustu fyrst. í því sambandi var undirstrikað að nemandinn æfði sig í og næði valdi á einstökum grundvallareindum efnisins (e. tool skills), áður en hann tæki til við næstu eindir eða samsett verkefni sem ofar lægju í kröfustiganum. Einnig var útskýrt hvernig þessi sértæka framsetning námsefnisins, og skynjunar- og verkleiðir ásamt öðrum athöfnum kennarans, væru þær frumbreytur sem skilgreina þarf til að hægt sé að skoða áhrif þeirra á hegðun nemandans, sem er hin skilgreinda fylgibreyta. Með hnitmiðaðri greiningu og magnbindingu breytanna er mögulegt að stýra þeim á markvissan hátt. I frumrannsóknum skoðum við hvernig sambönd frum- og fylgibreyta liggja. Ur slikri greiningu fæst þekking á eðli sambandanna sem við getum kallað tækni þegar hún er nytjuð á vettvangi. Þegar PT tæknin er notuð í skólastofunni getur kennarinn beitt einni og sömu aðferðinni samtímis við kennslu og vísindaleg vinnubrögð af þessu tagi til að skoða áhrif kennslunnar og námseindanna á hegðun hvers nemenda, jafnvel í stórum getublönduðum bekk. Með PT auka kennarar líkur á því að nemendurnir bæti færni sína a.m.k. tvöfalt í hverri viku í þeim námsefniseindum sem verið er að þjálfa þá í, og „muni” áfram það sem þeir lærðu. Jafnframt því sem nemendur eru þjálfaðir í nýjum atriðum námsefnisins, skrá þeir jafnóðum hjá sér á mælitækið hið staðlaða hröðunarkort, nákvæmar, tölulegar upplýsingar um það hvernig þeim gengur. Hröðunarkortið er ekki gagnageymsla, heldur er það stýritæki. Það er sú hlutlæga, megindlega og myndræna mælistika sem hver kennari getur haft til að rannsaka stöðugt árangur kennslu sinnar. Á grundvelli þess tekur hann ákvarðanir um hvað hann gerir í kennslunni og hverning. Á að halda áfram eins, eða þarf einhverju að breyta? Það eru ákvarðanir sem byggjast á raungögnum frá hverjum nemanda. en ekki á hugmyndum, kenningum eða tilfallandi tískufyrirbærum. Af upplýsingum um athafnir nemandans sem skráðar eru á hröðunarkortið, geta nemandinn og kennarinn fylgst nákvæmlega með framvindu námsins. Á hverjum degi, í hverri kennslustund, jafnvel frá einni mínútu til annarrar sjá þeir hvort nemandinn bætir sig, honum fer aftur eða hann stendur í stað. Á grundvelli þessara gagna tekur kennarinn ákvarðanir um hvað gagnlegast er að gera næst: a Tímarit um menntarannsóknir, 1. árgangur 2004
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234
Page 235
Page 236
Page 237
Page 238
Page 239
Page 240
Page 241
Page 242
Page 243
Page 244
Page 245
Page 246
Page 247
Page 248
Page 249
Page 250
Page 251
Page 252
Page 253
Page 254
Page 255
Page 256
Page 257
Page 258
Page 259
Page 260

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.