Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2004, Blaðsíða 119
117
slíkt. Ég tilheyri hópnum „matsaðili" þegar
ég hef verið að vinna að mati, en ég er
jafnframt leikskólakennari. Ég hef þar að auki
starfað mikið að bæði fag- og kjaramálum
fyrir Félag leikskólakennara, starfað fyrir
menntamálaráðuneytið að leikskólamálum og
er lektor í leikskólafræðum við Háskólann á
Akureyri. Þessi staða hefur auðvitað áhrif á
það hvernig mér er tekið í leikskólanum og
hvernig tekið er í þær niðurstöður sem ég set
frá mér. Ymsir rannsakendur hafa fengist við
vandamál sem tengjast því að vera á mörkum
tveggja heima. Þar hafa spurningar sem lúta að
siðferði og tengsl um rannsakanda við þá sem
hann er að rannsaka verið fyrirferðamiklar.
Má til dæmis benda á grein Wolcott (1990)
þar sem hann greinir frá eigin rannsókn á
utangarðsungmenni sem seinna varð jafnframt
ástmaður hans. Hann segir frá hvernig þessi
tengsl veittu honum aðgegni og aukinn skilning
en líka hvemig þau á endanum sköðuðu báða.
Að þekkja verklag
- sannfærandi mat
Greinarmunur er almennt gerður á rannsóknum
annarsvegar og mati hinsvegar sem vert er að
glöggva sig aðeins á. Mat er um margt nátengt
hagnýtum rannsóknum. Bæði byggir á að afla
upplýsinga á kerfisbundin hátt. Það sem skilur
helst að er að við mat er áherslan á hagnýtt
gildi þeirra upplýsinga sem safnað er frekar
en á tengingu við ákveðin fræði (Hall og Hall,
2004). Mat byggir á því að fella ígrundaða dóma
byggða á upplýsingum. Rannsókn hinsvegar er
ætlað að afla sértækra upplýsinga sem hafa
það að markmiði að bæta við þá þekkingu sem
fyrir er (Worthen og Sanders, 1997). Green
(2003) bendir á að mat sé nátengt völdum og
pólitík, því að taka ákvarðanir um á hvað beri
að leggja áherslu, hvert skuli stefna. Því sé
ljóst að mat getur aldrei verið óháð umhverfi
sínu. í ljósi sterkra tengsla rannsókna og mats
má telja nauðsynlegt fyrir matsaðila að búa
yfir góðri þekkingu á aðferðafræði, sérstaklega
með það í huga að niðurstöður verði teknar
trúanlegar. Þó gerður sé ákveðinn greinarmunur
á rannsóknum og mati telur Bickman að ekki
megi gleyma því að í hverju góðu matsverkefni
felist líka möguleikar til rannsókna og til þess
að hafa áhrif á stefnumótun. I raun sé það sóun
á rannsóknartækifærum að nýta ekki mat til
rannsókna (í Fitzpatrick, 2002).
Tilgangur mats er margvíslegur og raunar
fer tilgangurinn oft eftir því fyrir hvern matið
er gert. Fyrir matsaðila er nauðsynlegt að
bera strax kennsl á tilganginn, bæði vegna
þess að það hefur áhrif á matsleiðir og þá
aðferðafræði sem notuð verður en líka og ekki
síst vegna þeirra siðferðislegu spurninga sem
hver matsaðili verður að svara með sjálfum
sér. Samkvæmt Mark, Henri og Julines (2000)
teljast eftirfarandi þættir algengir við ákvörðun
um tilgang mats almennt:
• Mat á gildi: Hvert er gildi og lögmæti
viðkomandi stofnunar/stefnu, á einstak-
lings- og/eða stofnanaplani?
• Umbótamiðað: Sú fyrirætlun að nota
upplýsingar sem fást við mat til þess að
breyta eða bæta stofnun/stefnu.
• Yfirsýn og fylgni við lög og reglur: Mat
á því að hve miklu leyti stofnun/stefna
fylgir þeim ytri ramma sem samfélagið
hefur sett.
• Þekkingarþróun: Að finna eða prófa
almennar kenningar eða tilgátur sem
tengjast stefnu/stofnun.
A það er bent að þegar verið er að meta
skólastarf eða aðrar mannlegar stofnanir er í
leiðinni alltaf verið að meta manneskjur og
þeirra gerðir.
Til að mat geti talist trúverðugt verður
það að byggjast á fjölbreyttum gögnum og
að mismunandi aðferðum hafi verið beitt
við öflun þeirra (Bogdan og Biklen, 1992).
Sem dæmi má nefna að við mat á starfsemi
deildar í leikskóla sé fylgst með og gerð
vettvangsathugun, viðtal tekið við börn,
starfsfólk og foreldra og spurningalistar lagðir
fyrir. Aðferðafræðin ætti þannig að tryggja að
gögnum sé safnað frá öllum hagsmunaaðilum,
gögnunum sé safnað á mismunandi máta og
Tímarit um menntarannsóknir, 1. árgangur 2004