Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2004, Qupperneq 232
230
það ekki komið í stað leiðbeiningar, aðstoðar
og hvatningar góðs kennara (Collinson, et.al,
2000). Eða eins og Reid segir ”technology can
be used to complement other aspects of good
teaching rather than replace them” (Reid,
2002). Kennara geta nýtt sér tæknina til að bæta
kennslu og auka fjölbreytileika til að koma til
móts við sífellt stærri og margbreytilegri hóp
nemenda. Nemendur munu áfram þurfa aðstoð
og leiðbeiningar til að geta nýtt sér þau náms-
tækifæri sem bjóðast á hvaða formi sem þau
eru.
Nám og kennsla byggjast á flóknum
samskiptum milli kennara og nemenda.
Með aukinni notkun á UST í skólum geta
kennara þurft að endurskoða hlutverk sitt í
kennsluferlinu. Hlutverk þeirra getur þróast
út r að verða verkstjórn eða leiðbeinendur
sem bjóða nemendum upp á hvetjandi
námsumhverfi. Aherslan getur orðið meira
nemendamiðuð ef vel tekst til og aukið virkni
og ábyrgð nemenda.
Nú er áherslan á Netinu meiri á ritmál
en talmál, þar sem samskipti byggjast að
mestu á textaskrifum og getur það eflt
markmiðsbundið námsumhverfi og umræður.
Tímaskeið umræðna hefur breyst með notkun
á Netinu þar sem bæði kennarar og nemendur
geta hugsað um svarið, leitað að gögnum og
heimildum, endurskoðað hug sinn en einnig
brugðist skjótt við og svarað því sem fyrst
kemur upp í hugann. Kennarinn getur notað
þetta tækifæri til að þjálfa nemendur í umræðu
og röksemdafærslu en einnig til að virkja
nemendur og gera þá ábyrgari fyrir sínu námi.
Það er auðvelt að sjá hverjir taka ekki þátt
þegar ekki er hægt að fela sig bak við sam-
nemendur.
Að taka þátt í uppbyggjandi umræðu er
mikilvægur hluti af menntun. Kennari sem
vill nota UST til að efla umræðu og samskipti
hvort sem það er í hefðbundinni staðbundinni
kennslu, dreifkennslu eða fjarkennslu verður
að kynna sér vel þá tækni sem stendur til
boða og þær hugmyndir sem eru um notkun
hennar. Þessi nýju samskiptaform geta í senn
verið spennandi, hvetjandi og ögrandi en um
leið ókunnugleg og fráhrindandi. Ekki má
gleyma að ólíklegt er að nemendur séu öruggir
í nýju námsumhverfi með nýjum kröfum um
virkni og samskipti. Þó að þeir séu margir
vanir tölvuleikjum og fimir með þumalinn
á farsímanum þá er ekki vrst að þeir séu
undirbúnir undir kerfisbundna og markvissa
notkun á UST í námi og kennslu. Kennarar
og nemendur þurfa tíma til að kynnast nýjum
möguleikum sem bjóðast með aukinni notkun
á UST í skólastarfi.
Samskipti með hjálp tækninnar geta gefið
nemendum nýja frelsistilfinningu þegar þeir
geta haft samband við kennara, spurt og svarað
spurningum þegar þeim hentar og á þeim stað
sem þeim hentar. En þessi samskipti geta
einnig skapað fjarlægð frá umræðunni, þátttaka
getur verið dræm eða sein og lifandi umræða
og hugarflug augnabliksins hverfur. Nemendur
geta nýtt sér það persónuleysi sem Netið býður
upp á en gæði samskiptanna byggjast á því
skipulagi sem er til staðar og þeim tækjum
sem notuð eru, sem og hlutverki nemenda og
kennara (Ásrún Matthíasdóttir, 2002).
Nemendum og kennurum verður að líða vel
í því tækniumhverfi sem þeir vinna í og breyt-
ingar á viðhorfum tengjast reynslu þeirra þar
sem jákvæð reynsla leiðir til jákvæðra viðhorfa
(Ásrún Matthíasdóttir, 2002; Reid, 2000;
Huang et al., 1995; Liao, 1993). Tæknin er
ekki það sem skiptir mestu máli heldur hvernig
hún er notuð. Hlutverk kennarans er mikil-
vægt þar sem hann hefur nú nýja möguleika
á samskiptum við nemendur sem einstaklinga
eða sem hóp með hjálp nýrra miðla. Hedberg
et al. (1997) telja að “Tlie multitude of ways
the teacher and learner can communicate
and the time and feedback quality of those
communications largely determine the success
of the teacher/learner relationship and tlie
learning outcomes“. Samskiptamöguleikarnir
gefa kennurum tækifæri til að efla jákvæð
viðhorf og auka sjálfsvirðingu nemenda, sem
og að efla þeirra nám.
Mat erhluti af kennslu- og námsferlinu og hér
getur UST boðið upp á marga möguleika, s.s.
gagnvirk próf og verkefni, sem og margskonar
Tímarit um menntarannsóknir, 1. árgangur 2004