Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Page 38
Börkur Hansen og Steinunn Helga Lárusdóttir
þróunarverkefni í gangi. Sýn þeirra ein-
kenndist af jákvæðni og stuðningi en ekki
framsækni. Einn sagði:„... þetta kemur oft
frá starfsfólkinu sjálfu og við tökum það
og bökkum það upp."
Langfestir skólastjóranna virtust aftur
á móti li'ta svo á að hlutverk þeirra fælist
í því að hvetja og styðja starfsfólk sitt og
skólastjórarnir virtust gera sér góða grein
fyrir hæfileikum og styrk starfsfólksins.
Einn þeirra sagði til dæmis: „Ég vil frekar
vinna með fólki og láta hugmyndirnar
spretta í hópnum ..." Sá hinn sami sagði
einnig: „[Ég] sé það ekki ganga að ég geti
komið hérna einn góðan veðurdag á starfs-
mannafund og segi, ég er búinn að ákveða
að við ætlum að vera PBS-skóli eða eitt-
hvað annað."
Tveir skólastjóranna virtust hafa
nokkra sérstöðu með framangreindri af-
stöðu; til viðbótar því að vera hvetjandi
og styðjandi voru þeir einnig framsæknir
og virkir. Annar þessara skólastjóra segir
að „kennsluhættir í stofnuninni hafi gjör-
breyst á þeim 25 árum" sem hann hefur
verið þar við störf og það sé ekki einungis
verk skólastjórans: „Það er sko andrúms-
loft... sem skólastjórnendur og skólastjóri
og kennarar búa til sameiginlega." Síðan
segir hann:
Ég lít á stjórnun sem list, og það er mitt hlutverk að
koma „sólunum" upp á himinhvolfið. Skilurðu! Ef
það er bara ein sól, þá dofnar hún og það er fullt
af skuggum. En því fleiri sem sólirnar eru á himin-
hvolfinu, þeim mun meira birtir í herberginu.
Sambærileg áhersla kom fram hjá hin-
um skólastjóranum sem segir að megin-
áherslan í hans skóla sé „að útskrifa krakk-
ana okkar sterk, sjálfstæð og lífsglöð ..."
Hann segir jafnframt að þau byggi skóla-
starfið á samvinnu og teymisvinnu og ræði
mikið um leiðir. Um þetta segir hann: „...
teymin eru kannski að koma með eitthvað
sem hefur gengið vel og deila þvf með hin-
um, til þess að láta eignarhaldið á þessu
öllu vera hjá þeim líka. En ég náttúrulega
er bara ákveðinn leiðtogi, og mér finnst
ágætt að vera það." ,,[V]ið höfum verið að
prófa alltaf endalaust eitthvað nýtt og nýtt
til þess að finna bestu leiðina. Og við erum
ekkert endilega komin niður á fast land
alls staðar ..."
Af framangreindu má ráða að leiðsögn
og stuðningur við nám og kennslu var
öllum skólastjórunum í þátttökuskólunum
hugleikin. Þeir beittu ýmsum leiðum f því
sambandi en einungis einn þeirra sagðist
markvisst veita kennurum beina leiðsögn
á vettvangi. Þá er átt við að fara í kennslu-
stundir og safna gögnum um kennslu við-
komandi kennara og veita leiðsögn á þeim
grundvelli. Þeir stuðluðu aftur á móti
allir að leiðsögn með óbeinum hætti, svo
sem með því að skapa kennurum og öðru
starfsfólki aðstæður til þróunar í starfi með
samstarfi og samvinnu um þróun náms-
og kennsluskipulags og með þátttöku í
mati af ýmsu tagi.
Umræða
Forysta um nám og kennslu
Sergiovanni (2009) telur að það sem mestu
máli skipti í stjórnun skóla sé að veita for-
ystu á sviði náms og kennslu til að geta
komið betur til móts við þarfir nemenda og
stuðlað að betri námsárangri. Þessi áhersla
er studd rannsóknum sem sýna að sterkir
kennslufræðilegir leiðtogar hafa áhrif á
námsárangur (Hallinger, 2009; Leithwood,
36