Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Page 53

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Page 53
Brotthvarf og endurkoma fullorðinna í nám á framhaldsskólastigi og tækifærum sem hafa verið í boði, og við mikil umskipti í lífi einstaklingsins er sú mynd oft endurskoðuð rækilega og menn koma auga á tækifæri í samtímanum í ljósi endurmats á lífssögu fortíðar. Kenningarlegur bakgrunnur rann- sóknar þessarar og greinar er sem sé ofinn saman úr kenningum Bourdieus um félagslega mismunun og kenningum Becks og fleiri um einstaklingsvæðingu, hvörf frá lífssögu viðmiða til lífssögu vals og jójó- vegferð. í stað þess að skoða þessar kenningar sem andstæður, eins og °ft er gert, er sjónarhornið hér að félagsleg mismunun verður lítt sýnileg, en vitund beinist meira að vali einstaklinga. Bæði í fræðum og starfi verði að huga að sam- bandinu milli hins lítt sýnilega félagslega arfs og öllu sýnilegri valmöguleika, en hér verður þetta samband einkum skoðað í lífssögulegu samhengi. Rannsóknin Rannsóknin sem hér er kynnt er hluti af stærra rannsóknarverkefni urn aðgerðir gegn atvinnuleysi ungs fólks og samspil atvinnuleysis, aðgerða og breyttrar veg- ferðar þeirra.3 Hér er kynntur sjálfstæður hluti rann- sóknarinnar, sem beindist að fólki sem hafði horfið frá námi í framhaldsskóla en snuið aftur eftir áratug eða meira, sumir á háskólabrú með háskólanám í huga og aðrir í iðnskóla. Rannsóknarspurningar voru breiðar og leitandi, eins og fram hefur komið. Nálgun 1 viðtölum má kenna við „vandamálamið- aða lífssögulega nálgun" (Witzel, 2000), þ-e. áhersla var lögð á að fá viðmælendur til að skoða og ræða hvað varð til þess að þeir hurfu frá námi í framhaldsskóla á sínum tíma og hvað varð til þess að þeir hófu nám á nýjan leik. Ahersla var lögð á að laða fram h'fssögulegt samhengi vals og annarra viðburða, hvernig það tengdist uppruna þeirra og hvernig þekking þeirra og viðhorf hafði breyst á þessum tíma og hvaða reynsla hafði skipt máli í því sam- bandi. Gagna var aflað með rýnihópa- og ein- staklingsviðtölum við þrettán manns, sjö konur og sex karla. Tvö rýnihópaviðtöl voru tekin, annað með sjö þátttakendum og hitt með þrem þátttakendum. Einnig voru tekin fjögur viðtöl við einstaklinga sem tekið höfðu þátt í rýnihópum og þrjá sem ekki höfðu komist í rýnihópaviðtölin, þannig að einstaklingsviðtöl voru tekin við sjö manns en tíu tóku þátt í rýnihópa- viðtölum. Rammi rýnihópaviðtala var lífssögu- legur. Rýnt var í tvo lífssögulega hverfi- punkta sem allir þátttakendur áttu sam- eiginlega, þ.e. brotthvarf og endurkomu, og þátttakendur spegluðu sig í reynslu hver annars, fundu líka þætti og ólíka og fengu hvert annað til að útskýra sögu sína. A milli og meðfram var fjallað um ýmsa reynslu af vinnumarkaði og lífinu almennt, frá brotthvarfi og til endurkomu, og veigamikill hluti var umræða urn ýmsa reynslu af endurkomunni og hvernig fyrri reynsla hefur verið endurmetin í ljósi hennar. I einstaklingsviðtölunum var farið yfir lífssöguna í sama ljósi en jafnframt gafst viðmælendum tækifæri til að koma einstaklingsbundnum og oft viðkvæmum atriðum á framfæri. í einstaklingsviðtöl- unum kom hið lífssögulega samhengi ein-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.