Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Page 62

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Page 62
Gestur Guðmundsson og Hulda Karen Ólafsdóttir OECD, 1997). Menntun úreldist æ hraðar, sé hún ekki endurnýjuð, og það sem meira er: það er æ erfiðara að sjá fyrir um það hvaða nýsköpun þekkingar og hvaða endurnýjun þekkingar skilar samfélagi og einstaklingum árangri. Frá sjónarhorni einstaklinganna, sem mynda samfélagið, er þessi breyting á stöðu þekkingar og menntunar í samfé- laginu hluti af miklu víðtækari samfélags- breytingu. Það er ekki bara svo að ævistarf er að mestu úr sögunni, heldur breytist menning, lífshættir og viðhorf miklu örar og djúptækar en fyrr. Grundvallar- breytingar, sem eitt sinn urðu á mörgum öldum, urðu í iðnaðarsamfélaginu á milli kynslóða, en verða nú á einni mannsævi og með einni kynslóð (Chisholm, 2001). Síðustu áratugi hefur menntunarsókn íslendinga ekki lotið markvissri stefnu og stýringu stjórnvalda heldur hafa stjórn- völd á margan hátt fremur lagað sig að menntunarsókn þjóðarinnar. Því fylgja bæði kostir og gallar. Þegar samræmdur framhaldsskóli var mótaður á áttunda og níunda áratug síðustu aldar varð hann far- vegur fyrir sprengimagnaðan vöxt í fram- haldsskólasókn en brotthvarf var einnig mikið. I tuttugu ár (hér er miðað við tíma- bilið milli setningar framhaldsskólalaga 1988 og 2008) óx ekki bara umræða um brotthvarfið heldur var líka margt reynt til að draga úr því, en án árangurs. Hins vegar var minna um það rætt hve endur- koma gamalla brotthvarfsnema reyndist mikil, en það var kannski mikilsverðasti árangur þessa tímabils. Því er rík ástæða til að árétta að breytingar framhaldsskólans á næstu misserum verði ekki til þess að skerða endurkomumöguleika þeirra sem ekki „finna sig" í nýjum framhaldsskóla eða hafa ekki fundið sig í þeim gamla. Hátt endurkomuhlutfall í framhalds- skólanám hefur verið lítt sýnilegt en er eitt helsta ævintýrið í íslenskri menntaþróun síðustu áratugi. 1 Þannig eru tölur OECD um námslok á réttum tíma mikið breyttar árið 2013, en samkvæmt þeim ljúka 88% fslenskra framhaldsskóla námi á réttum tfma og er það vel fyrir ofan meðallag OECD- landa (OECD 2013, bls. 50, Table A2.1a). Ljóst er að skilgreiningu á „námslokum á réttum tíma" hefur hér verið breytt verulega á milli ára en það er ekki útskýrt af hálfu OECD. 2 Gagnagrunnar Hagstofu innihalda ítarlegar upp- lýsingar um námsferla og próflok, en þörf er á úrbótum í birtingu. I núverandi birtingum er í talsvert mörgum tilvikum um að ræða próflok sömu einstaklinga á framhaldsskólastigi, því að vitað er að verulegur hópur framhaldsskólanema lýkur bæði prófi í starfsgreinum og stúdentsprófi. Til dæmis í Danmörku birtir Hagstofan tölur um "hæstu próflok", og eins væri hægt að hugsa sér að birtar yrðu tölur um "tvenn próflok eða fleiri". 3 Verkefnið beinist að þeim aðgerðum gegn at- vinnuleysi ungs fólks, sem hófust í ársbyrjun 2010 undir heitinu Ungt Fólk Til Athafna og var ætlað að aðstoða unga atvinnuleitendur að hverfa aftur til náms eða þjálfa sig á annan hátt fyrir atvinnuþátttöku. Því var síðan fylgt eftir í verk- efninu Nám er Vinnandi Vegur, sem enn stendur yfir. Auk þeirrar rannsóknar sem hér er kynnt hafa m.a. verið gerðar vettvangsrannsóknir á mis- munandi úrræðum fyrir unga atvinnuleitendur. Rannsóknin í heild er styrkt af Rannsóknarsjóði Háskóla íslands. 60
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.