Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Page 70

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Page 70
Guðný Guðbjörnsdóttir kenna drengnum, heldur að leiða hann. Drengurinn á sjálfur að uppgötva lögrnál tilverunnar, enda er talað um neikvæða menntun í skilningi af-menntunar, eða að forðast spillt samfélagsleg gildi. Emile er alinn upp eins og siðaður frummaður, sem hugsar eingöngu um sjálfan sig og að læra og vera frjáls í náttúrunni, án þess að spillast af samfélagi við annað fólk. Hann þroskar skynfærin með því að takast á við öfl í náttúrunni, og með því að leysa verk- efni læriföður síns. í þriðja hluta bókarinnar er fjallað um aldurinn frá ellefu til fimmtán ára. Þar er m.a. fjallað um val Emiles á iðju eða starfi, sem helst þarf að vera virðingarvert og gagnlegt. Jean-Jacques sögumaður segist vona að það falli að smekk Emiles að verða smiður: „Það er hreinleg iðn, hún er gagn- leg, og mögulegt er að vinna heima. Hún heldur líkamanum í góðu formi, krefst mikillar færni og dugnaðar. Og þó að iðjan sé hagnýt skiptir smekkur og glæsileiki einnig máli." (Rousseau, 1979, bls. 201). í þessum hluta fær Emile einnig að kynn- ast sinni fyrstu bók, Róbinson Krúsó eftir Daniel Ðefoe (1986). Hún kom fyrst út árið 1719 og fjallar um mann sem þarf að læra að komast af í náttúrunni á eyðieyju. Bókin um Róbinson Krúsó á ekki aðeins að vera Emile til skemmtunar, heldur á hún að gefa honum heildarsýn og viðmið. Bókin á að vera honum eins konar biblía í náttúru- vísindum og gefa innsýn í eðli mannsins við frumstæðar aðstæður. Staðreyndir, vís- indin og náttúran eru aðalviðfangsefnin, ekki trúmál eða listir. Nám og leikur eru samofin eins og í hugmyndum um frjálst uppeldi yfirleitt og forðast skal samanburð við aðra. Emile er líkt við náttúrulegt blóm og lærimeistarinn er garðyrkjumaðurinn. í lok þriðja hluta krefst Emile einskis af öðr- um og telur sig ekki skulda neinum neitt. „Hann er heilbrigður og sterkur líkamlega, með nákvæman huga, án fordóma og með hreint hjarta laust við ástríður" (Rousseau, 1979, 208). Hann reiðir sig á sjálfan sig, en samfélagsvitundin er að vakna. Hvernig 15 ára náttúrubarnið Emile er gert að samfélagsþegn, sem tekur siðferði- lega ábyrgð bæði í einkalífi og sem borgari í nýju þjóðskipulagi, er fjallað um í fjórða og fimmta hluta. Emile er virk, hugsandi vera, sem þarf að læra að elska og finna til. Lærimeistarinn telur hann nú hæfan til að upplifa flóknar mannlegar tilfinningar og setja sig í spor annarra og því tilbúinn að verða félagsvera. Trúmál eru fyrst kynnt, sbr. einn umdeildasta kafla bókarinnar (e. Profession of Faith of the Savoyard Vicar) sem varð til þess að bókin um Emile var víða bannfærð af yfirvöldum kirkjunnar. Almennt gerir Rousseau eða lærimeistar- inn þó lítið úr mikilvægi trúmála fyrir Emile og hann má ráða eigin afstöðu í þeim efnum (sjá umfjöllun hjá Darling, 1994), því siðfræðin er aðalatriðið fyrir borgara sem er annt um almannaheill. í fimmta hluta bókarinnar er fyrst fjallað um Sophie sem verðandi eiginkonu Emi- les og hvaða hlutverki fyrirmyndarkonan gegnir í umbreytingunni á náttúrubarninu Emile yfir í siðaðan mann. Markmiðið er að gera Emile að sjálfráða, siðferðileg- um borgara sem getur tekið sjálfstæðar ákvarðanir til almannaheilla og verið ábyrgur í einkalífi sínu. Höfundur greinarinnar tekur undir með Allan Bloom, sem segir lærimeistar- ann Jean-Jacques gefa Emile fjögur viðmið 68
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.