Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Side 73

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Side 73
Uppeldishugmyndir Rousseaus í kynjafræðilegu Ijósi: Afturhaldssemi, kvenfyrirlitning eða byltingarkennd framsækni? samt eru svo frábrugðnar að gerð" (Rous- seau,1979, bls. 357-8). Síðan segir að fullkomin kona og full- kominn karl eigi ekki að líkjast hvort öðru vitrænt (e. in mind) fremur en útlitslega og þetta hljóti að hafa áhrif á síðfræðileg tengsl kynjanna: Annað ætti að vera virkt og sterkt, hitt óvirkt og veikt; annað verður nauðsynlega að vilja og geta, það er nóg fyrir hitt að sýna örlítinn mótþróa. Þegar þetta er komið á hreint, þá er ljóst að kon- ur eru gerðar sérstaklega til að gleðja karla. Ef maðurinn ætti að gleðja hana á móti væri það af óbeinni nauðsyn. Hann hefur valdið; hann gleður með sínum styrkleika fyrst og fremst. Þetta eru ekki lögmál ástarinnar, samþykki ég. En þetta eru lögmál náttúrunnar, sem eru ástinni fremri (Rous- seau, 1979, bls. 358). Þá segir enn fremur að hæfileikum kynjanna sé ekki jafnt skipt á milli þeirra, en í heild bæti þau hvort annað upp. Kon- an sé meira virði sem kona en minna sem karlmaður; þegar hún nýtir sér eigin rétt- ■ndi hafi hún forskot, en ef hún vill nýta sér réttindi karla verði hún undir. Svo virðist sem viðhorf Rousseaus hl hlutverka kynjanna ráði því hvernig menntun kynin eigi að fá þó að hann segi þau stjórnast af náttúrulegu eðli, enda fara hlutverk og eðli saman samkvæmt eðlis- hyggju hans. Menntun til að vera skyn- semisvera er menntun til að vera frjáls og óháður borgari. Þetta hefur verið túlkað þannig af Rorty að skynsemi sé ávinning- ur fremur en upphafspunktur hjá Rous- seau. Aður en hann er orðinn fullmótaður sjálfráða borgari bregst hinn náttúrulegi maður við hverju sem honum blasir, án þess að hugsa málið, og án vals eða fyrir- hyggju (Ólafur Páll Jónsson, 2011, bls 26- 27). Jean-Jacques lærimeistari virðist ekki alltaf treysta hinu svokallaða eðli í raun og þarf því öðru hvoru að stýra þeim Emile og Sophie í rétta átt, en auðvitað þannig að þau átti sig ekki á því að það er hans hugmynd. Emile á að verða ættfaðir (e. patriarch) og borgari en Sophie á að verða dyggðug húsfreyja og tælandi eiginkona, sem hefur það meginhlutverk að eignast börn og geðjast eiginmanni sínum, ekki síst í kynlífi. Hið dyggðuga og hið tælandi kveneðli reynist hins vegar erfitt að sam- þætta, eins og síðar kemur fram (Sigríður Þorgeirsdóttir, 2001). Rousseau virðist átta sig sjálfur á vand- anum við það að Sophie fái ekki menntun sem skynsemisvera. Hún væri því ófær um að bregðast við mótlæti með skyn- samlegum rökum. Ef hún er ófær um það verður hún þræll almenningsálitsins og um leið ófær um að vera eiginkona Emiles og að vera móðir. En ef henni er leyft að þroska eigin skynsemi, eins og Descartes gerði ráð fyrir að allir menn hefðu getu til, þá á hún tilkall til jafnréttis á við Emile og þá hriktir í heimsmyndinni sem Rousseau byggir greiningu sína á (Johnston, 1999). Eftir dauða Rousseaus kom út ófullgert framhald bókarinnar um Emile, Emilc et Sophie (1994), þar sem allt það sem læri- meistarinn hafði óttast og varað við gerðist, m.a. það að Sophie var manni sínum ótrú. Þetta gerðist fljótlega eftir dauða móður Sophie og dóttur þeirra hjóna. Emile brást illa við, sá eftir að hafa farið með Sophie til borgarinnar með öllum tilheyrandi freist- ingum og yfirgaf hana og son þeirra. Sem sagt, uppeldið bar ekki tilætlaðan árangur! Og Emile segir lærimeistara sínum að hann sjái nú að bönd einkalífsins séu ekki virði þess sársauka sem þau geta valdið. Hann er því frjáls maður í lokin, en yfirgefur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.