Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Page 118
Hanna Ragnarsdóttir og Halla Jónsdóttir
9. tafla Mér finnst lærdómsrikt aö eiga vini af ólik-
um uppruna.
Fjöldi %
Mjög sammála 395 43,8
Frekar sammála 356 39,5
Frekar ósammála 35 3,9
Mjög ósammála 14 1,6
Veit ekki 102 11,3
Svarar ekki 2 0,2
9. töflu skiptast þannig að rúmlega 83% eru
mjög eða frekar sammála henni en 5,5%
eru frekar eða mjög ósammála og rúmlega
11% segjast ekki vita það. Nokkuð færri eru
þó sammála fullyrðingunni Samskipti við
fólk af ólíkum uppruna eru mér mikilvæg
en 61,5% þátttakenda eru mjög eða frekar
sammála fullyrðingunni. Tæplega 22% eru
frekar eða mjög ósammála fullyrðingunni
og tæplega 17% segjast ekki vita það. At-
hyglisvert er að bera þessar niðurstöður
saman við svör við fullyrðingunni Það er
gefandi að umgangast fólk sem hefur aðr-
ar skoðanir en ég. Svör við henni skiptast
þannig að tæplega 90% eru mjög eða
frekar sammála henni en tæplega 4% eru
frekar eða mjög ósammála og 6,6% segjast
ekki vita það. Þarna er verið að vísa til fjöl-
breyttra skoðana fólks almennt, fremur en
skoðana er tengjast uppruna eingöngu og
gæti það skýrt mun á svörum við þessari
fullyrðingu og þeim sem greint er frá hér
að framan. Fullyrðingar um traust milli
einstaklinga í fjölmenningarsamfélaginu í
könnuninni vekja að sama skapi athygli.
Tæplega 9% þátttakenda eru mjög eða
frekar sammála fullyrðingunni Ég treysti
síður fólki með annan litarhátt en ég í 10.
töflu en rúmlega 87% eru frekar eða mjög
ósammála og 4% segjast ekki vita það.
Áhugavert er að velta fyrir sér skýring-
Tafla 10 Ég treysti siður fólki meö annan litarhátt
en ég.
Fjöldi %
Mjög sammála 28 3,1
Frekar sammála 51 5,7
Frekar ósammála 187 20,8
Mjög ósammála 597 66,4
Veit ekki 36 4,0
Svarar ekki 5 0,5
um þess að svör við framangreindum full-
yrðingum eru nokkuð breytileg og verður
fjallað um niðurstöðurnar í fræðilegu sam-
hengi hér á eftir, auk þess sem viðhorfa-
könnuninni er fylgt eftir í rýnihópavið-
tölum í framhaldsskólunum eins og áður
segir.
Umræða og lokaorð
í greininni er lagt upp með eftirfarandi
rannsóknarspurningu: Hver eru viðhorf
framhaldsskólanema til margbreytileika
samfélagsins, félagslegrar stöðu sinnar,
samskipta og vináttu? f niðurstöðukafla
hefur verið fjallað um svör við fullyrð-
ingum í viðhorfakönnun meðal ungs
fólks í framhaldsskólum um þá þætti
viðhorfakönnunarinnar sem falla undir
viðhorf til margbreytileika samfélagsins,
uppruna, tungumála og trúarbragða, en
einnig viðhorf til eigin styrks og eineltis.
Að mati Bliding (2004) tileinkar ungt fólk
sér þau gildi og viðhorf sem eru ríkjandi
í viðkomandi samfélagi. Á undanförnum
árum hafa orðið miklar og hraðar sam-
félagsbreytingar sem felast m.a. í ein-
staklingsvæðingu, þróun úr einsleitni
yfir í fjölbreytileika og frá fyrri kyrrstöðu
í óstöðugleika bæði hvað varðar tengsl
fólks, hefðir og gildi. (Bauman, 2007; Beck,