Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Síða 150
Kári Kristinsson, Tinna Dahl Christiansen og Friðrik Eysteinsson
hægt að nota einkunnir úr háskóla sem
vísbendingu um afkastagetu í starfi. Þátt-
takendur í rannsókninni voru beðnir að
meta hversu vel reynsla þeirra úr skóla
hefði búið þá undir sitt fyrsta starf. Niður-
stöður sýndu að þeir sem voru með hærri
einkunnir töldu sig vera betur undir-
búna fyrir fyrsta starfið (Jones og Jackson,
1990). Velta mætti vöngum yfir því hvort
atvinnurekendur njóti í raun ávinnings af
hærri einkunnum eða hvort það sé í raun
fyrir aukna hæfni sem þarf til að fá háar
einkunnir. Miller (1998) sýndi fram á að
það væri lærdómurinn en ekki hæfnin sem
málið snerist um þegar spáð væri fyrir um
framleiðni til lengri tíma litið. Niðurstöður
rannsóknarinnar sýndu einnig að hluta af
aukinni framleiðni mætti rekja til mjúkrar
færni (e. soft skills) sem atvinnurekendur
leita eftir og einstaklingar þurfa að búa
yfir til að geta fengið háar einkunnir. Þessi
mjúka færni felur í sér reglulega mætingu,
góðan undirbúning, mikla vinnu og mik-
inn aga sem atvinnurekendur kunna að
meta. Þessir sömu þættir eru einnig metnir
af skólum og er umbunað fyrir með háum
einkunnum (Miller, 1998).
Samkvæmt fyrri rannsóknum eru nem-
endur með háa meðaleinkunn metnir hæf-
ari en nemendur með lága meðaleinkunn
og er því eftirfarandi tilgáta sett fram:
Tilgáta 3: Umsækjandi með háa meðal-
einkunn (8,5) er metinn hæfari en umsækj-
andi með lága meðaleinkunn (6,5).
Einkunnir og laun
Þó að hagfræðingar hafi fundið jákvæða
tengingu milli meðaleinkunna háskóla-
stúdenta og tekna þeirra hefur þetta sam-
band ekki verið mikið rannsakað (Jones
og Jackson, 1990). Wise (1975) rannsakaði
hvort samband væri milli námsárangurs
og frammistöðu í starfi. Niðurstöður
sýndu að þeir sem útskrifuðust úr skólum
með ströngustu inntökuskilyrðin og með
hæstu meðaleinkunnina fengu næstum
tvöfalt meiri hækkun á launum en þeir
sem komu úr skólum með vægustu inn-
tökuskilyrðin og með lægstu meðalein-
kunnina (Wise, 1975). í rannsókn Jones
og Jackson (1990) var samband meðalein-
kunnar og tekna metið út frá fyrsta starf-
inu eftir útskrift og svo aftur fimm árum
síðar. Niðurstöður sýndu að sambandið
var sterkara en fyrri rannsóknir höfðu sýnt
og var marktækt fyrir bæði kynin (Jones
og Jackson, 1990). Fyrir úrtakið í heild
sinni hækkuðu árleg laun um 8,9% í kjöl-
far hækkunar á meðaleinkunn um einn
punkt (e. one-point), til dæmis úr C upp
í B. Þessi hækkun var einungis 1,4% hjá
Wise. Niðurstöður Filer (1981) sýndu hins
vegar að ef meðaleinkunn hækkaði um
einn punkt á fjögurra punkta skala fylgdi
hækkun sem nam 42 bandaríkjadölum á
mánuði fyrir þá sem höfðu stundað nám
í háskóla. Hugsanlegt er að skekkja hafi
verið í úrtaki Wise þar sem það samanstóð
einungis af starfsmönnum eins fyrirtækis
0ones og Jackson, 1990). Niðurstöður Fi-
ler (1981) voru nær niðurstöðum Jones og
Jackson en þar voru mörg fyrirtæki í úrtak-
inu (Jones og Jackson, 1990). Niðurstöður
rannsóknar James, Alsalam, Conaty og To
(1989) sýndu enn fremur fram á að jákvætt
samband væri milli einkunna og tekna;
hækki meðaleinkunn úr C í B eða úr B í A
aukast árlegar tekjur um 9% (James o.fl.,
1989).