Ægir - 01.07.2016, Blaðsíða 175
175
Löndun ehf sér um skipaafgreiðslu í Reykjavík og
Hafnarfjarðarhöfn. Fyrirtækið veitir vandaða og skjóta
þjónustu. Býður einnig upp á nauðsynlegan tækjabúnað
og úrval manna sem reiðubúnir eru með stuttum
fyrirvara að landa úr skipum.
Löndun ehf. - Kjalarvogi 21, 104 Reykjavík - Sími 552 9844 - Fax 562 9844 - londun@londun.is
Fyrirhyggja, lipurð
og samviskusemi
einkenna þá
þjónustu sem
við veitum
Sóknarfæri
Ægir og Sóknarfæri
Tímaritið Ægi hefur Athygli gefið út um 20
ára skeið, fyrstu árin fyrir Fiskifélag Ís-
lands en síðan sem eigin útgáfu. Ægir er
eitt allra elsta sjávarútvegstímarit í Evrópu
en það kom fyrst út árið 1905. Á þessum
langa tíma telur blaðsíðnafjöldi útgáfunn-
ar hátt í 50 þúsund. Ritstjórnarskrifstofa
Ægis og Sóknarfæris er á Akureyri og
Jóhann Ólafur Halldórsson ritstjóri seg-
ir það gefa auga leið að hvergi sé að finna
jafn góða mynd af íslenskum sjávarútvegi
og þróun hans eins og í heildarútgáfu Æg-
is.
„Líkt og verið hefur frá fyrstu árum Æg-
is er blaðið mánaðartímarit og við gefum
út 8 tölublöð á ári. Þetta er fagrit um sjáv-
arútveg sem fer býsna víða og fáir í at-
vinnugreininni sem geta verið án þess að
fylgjast með Ægi. Við höfum alla tíð lagt
upp úr að birta í tímaritinu bæði frétta-
tengt efni, viðtöl og fag-
legt efni og höfum í því
efni átt í góðu samstarfi
við starfsmenn rann-
sóknastofnana og aðra
þá sem koma vilja á
framfæri áhugaverðu
efni sem tengist sjáv-
arútvegi,“ segir Jóhann
Ólafur.
„Við hófum útgáfu
Sóknarfæris fyrir um
sjö árum og blaðið
hefur fyrir löngu
áunnið sér sess sem
greinargott yfirlit yfir þá
spennandi hluti sem alltaf eru að gerast í
kringum sjávarútveginn.“
Spennandi auglýsinga-
miðlar
Inga Ágústsdóttir er sölu-
stjóri auglýsinga í alla miðla
Athygli en hún hefur annast
það verkefni allt frá síðustu
aldamótum. Hún segir gaman
og gefandi að eiga samskipti
við hundruð stjórnenda í sjáv-
arútveginum og margir þeirra
hafi kosið að birta auglýsingar
sínar í miðlum Athygli um
langt skeið. „Ástæða þess að
fjölmargir kúnnar eru hjá okk-
ur árum saman er einfaldlga sú
að þeim líkar vel vönduð
vinnubrögð sem blaðamenn okkar og rit-
stjórar ástunda og vita vel að auglýsingar í
okkar miðlum skila þeim árangri og auk-
inni sölu,“ segir Inga Ágústsdóttir sölu-
stjóri auglýsinga hjá Athygli.
KÆLISMIÐJAN FROST EHF.
Kælismiðjan Frost ehf.
Fjölnisgata 4b, 603 AkureyriSími +354 464 9400
Fax +354 464 9401
Samstarfsaðilar: PF Frost, Færeyjum
Kælismiðjan Frost ehf.
Suðurhraun 12b, 210 GarðabæSími +354 464 9400
Fax +354 464 9402
frost@frost.is
www.frost.is
- Alhliða þjónusta og heildarlausnir- Hönnun og uppsetning smárra jafnt sem stórra kæli- og frystikerfa
Verið velkomin í básinn okkar B-20 á sjávarútvegssýningunni ICELAND FISHING EXPO 2016 / SJÁVARÚTVEGUR 2016,í Laugardalshöllinni, 28. - 30. september 2016.
T Í M A R I T U M S J Á V A R Ú T V E G Í 1 0 0 Á R
109. árgangur - 7. tölubla› 2016
ISSN 0001-9038