Ægir - 01.07.2016, Blaðsíða 67
67
Umfangsmikil varahluta- og
umboðsverslun
Á Dverghöfða er Framtak Blossi með mjög
umfangsmikla varahlutaverslun með
áherslu á eldsneytiskerfi, túrbínur, startara
og alternatora, auk sérpantana fyrir við-
skiptavini. Reynt er að hafa á lager breytt
úrval íhluta fyrir eldsneytiskerfi og túrbín-
ur og ýmislegt fleira. „Það er eiginlega
sama hvert vandamálið er, við reynum að
bjarga málunum,“ segir Guðmundur, enda
spanni tengslanet fyrirtækisins vítt um
heiminn og fyrirtækið með umboð og
þjónustu fyrir fjölmörg þekkt vörumerki á
ýmsum sviðum. Má þar nefna skipavélar,
dælur, vökvakrana, vökvaspil, síubúnað,
loftpressur, ásþétti, mæla, sérhæfð við-
gerðarefni fyrir vélbúnað, efnavöru og
annan búnað, efni og verkfæri til notkunar
í iðnaði.
„Fyrir um það bil hálfu öðru ári hófum
við sölu á Volvo Penta bátavélum og vara-
hlutum. Við bjóðum upp á ísetningu og
alla þjónustu og höfum fengið góð við-
brögð frá smábátaeigendum vítt og breitt
um landið,“ segir Guðmundur. Annað
dæmi um vinsælar vörur í íslenskum sjáv-
arútvegi frá Framtaki Blossa eru vökva-
kranarnir frá MKG sem eru víða á bryggj-
um landsins og í skipum og bátum og
vökvaspil frá Dinamic Oil. Þá selur Fram-
tak Blossi varahluti í MAK skipavélar en
Stálsmiðjan Framtak sér um viðgerðar-
hlutann. Fyrirtækið selur viðgerðarefni frá
Wencon, sem er framarlega í þróun og
framleiðslu viðgerðar- og slitefna fyrir
flestar tegundir vélbúnaðar og síubúnað
fyrir vökva og olíur frá C. C. Jensen en
framleiðsla þeirra á búnaði til hreinsunar á
flestum tegundum olía er vel þekkt meðal
þeirra sem vinna við viðhald og rekstur
vélbúnaðar. Sjódælur og dælur frá Desmi
eru einnig fáanlegar hjá Framtaki Blossa
og þess má geta að dælur frá þeim eru í
hluta nýrra fiskiskipa sem væntanleg eru
til landsins innan skamms. Einnig selur
Framtak Blossi plastfóðringar og leguefni
frá Thornton og varmaskipta og varahluti í
varmaskipta frá WCR ásamt mörgu fleiru.
„Við leggjum metnað okkar í að hafa
alltaf töluvert af búnaði og varahlutum á
lager og ef varan er ekki til er reynt að út-
vega hana á sem stystum tíma,“ segir Guð-
mundur, „enda skiptir hraði og örugg af-
hending öllu í þjónustu okkar við bæði
sjávarútveg og alla aðra atvinnustarfsemi í
landinu.“
Guðmundur Snorrason og Ásæll Óskarsson að störfum í verslun Framtaks Blossa að
Dverghöfða 27 þar sem finna má fjölbreytt úrval varahluta tengt þeim fjölmörgu
þekktu vörumerkjum sem fyrirtækið er með umboð fyrir.
Verkstæði Framtaks Blossa er eina sér-
hæfða díselverkstæði landsins og þar
ræður ríkjum Jóhann Ævarsson verk-
stjóri.