Ægir - 01.07.2016, Blaðsíða 108
108
Trackwell hf. hefur frá stofnun fyrir-tækisins, árið 1996, sérhæft sig í hugbúnaðargerð fyrir sjávarútveg-
inn með sérstaka áherslu á lausnir tengdar
fjarskiptum og staðsetningatækni. Track-
well er hluti af Íslenska sjávarklasanum og
leggur áherslu á að vinna með öðrum ís-
lenskum fyrirtækjum, bæði birgjum og út-
gerðarfyrirtækjum. Undanfarin ár hefur
Trackwell unnið að þróun upplýsingakerf-
is fyrir útgerðir, sem nefnist Hafsýn.
Upplýstari ákvörðun um framhald
veiða
Steingrímur Gunnarsson sölustjóri segir að
Hafsýn haldi utan um skráningar á veiðum
og ráðstöfun afla um borð. Kerfið skráir
sjálfkrafa staðsetningar, siglda vegalengd
og hraða, ásamt upplýsingum um veiðar
og afla. Hluti upplýsinganna skráist sjálf-
virkt en hluti er skráður af skipstjórnar-
mönnum um borð. „Upplýsingunum er
miðlað samtímis til útgerðarinnar í landi
en markmið kerfisins er að auðvelda
mönnum að taka upplýsta ákvörðun um
framhald veiða hverju sinni og velja hag-
kvæmastu leiðirnar í því sambandi,“ segir
Steingrímur. Hægt er að velja sérsniðin
skráningaviðmót fyrir ísfiskskip, frystiskip
og uppsjávarskip. Um borð í ísfiskskipum
er haldið utan um skráningar á körum,
stærðarflokkun, meðalstærð og gæðaþátt-
um. Í uppsjávarskipum er skráð ráðstöfun
í kælitanka (RSW), meðalstærð, verðmæti
og ýmsir gæðaþættir og í frystiskipum er
haldið utan um afurðaskráningar, afurða-
lista, vinnslugerðir og umbúðir. Þá er einn-
ig haldið utan um nýtingarprufur fyrir
hverja vinnslugerð og skýrslur til Fiski-
stofu og löndunarhafnar.
Upplýsingar bæta skilvirkni
Helsti kosturinn við Hafsýn er að með
kerfinu er hægt að skipuleggja veiðar og
vinnslu með tilliti til afurðaverðmæta,
gæða og framleiðni. Þá er einnig hægt að
skoða sögu fyrri veiðiferða, veiðislóðir afla
og verðmæti eftir mismunandi tímabilum.
Þar sem upplýsingunum er miðlað jafnóð-
um í land getur útgerðin greint þær nánar
og skipulagt frekari vinnslu og sölu afurða
um leið og aflinn er veiddur. Þá er viðmót
Hafsýnar einnig hannað með snjallsíma í
huga og er því hægt að fá veiðiyfirlit beint
í símann.
Með því að tengja Hafsýn við fram-
leiðslukerfin í landi fara upplýsingar varð-
andi framleiðsluna um borð sjálfkrafa inn í
birgðakerfi fyrirtækisins. Með því móti fær
útgerðin nákvæmar upplýsingar um upp-
runa vörunnar sem er forsenda fyrir rekj-
anleika svo hægt sé að staðfesta sjálfbærni
veiðanna. Mörg fiskiskip, sem nýlega hafa
bæst í flotann, hafa búnað sem skráir olíu-
notkun í rauntíma. Þessar upplýsingar er
hægt að lesa inn í Hafsýn og bera saman
olíunotkun einstakra hluta veiðiferðanna,
hvort sem skipin eru á stími eða að draga
veiðarfærin.
Ný hugbúnaðarlausn fyrir útgerðir
Steingrímur segir að á sjávarútvegssýning-
unni í Laugardalshöll verði megináherslan
lögð á að kynna nýjustu útgáfu Hafsýnar
þannig að útgerðamenn geti kynnst því
hvernig upplýsingarnar nýtast til að bæta
skilvirkni og ná fram aukinni hagvæmni.
„Við skynjum að útgerðirnar sjá sér hag í
að geta metið framlegð veiðanna meðan á
þeim stendur og Hafsýn gerir þeim einmitt
kleift að gera það.“
Steingrímur Gunnarsson sölustjóri hjá Trackwell segir Hafsýn gera útgerðunum kleift að meta framlegð veiðanna á meðan á þeim
stendur.
trackwell.is
Trackwell kynnir
upplýsingakerfið
Hafsýn