Ægir - 01.07.2016, Blaðsíða 80
80
Snertifletir Danfoss og íslensks sjávar-útvegs eru fjölmargir enda hafa leiðir þeirra legið saman um langt skeið.
Danfoss A/S er eitt af stærstu iðnfyrirtækj-
um Danmerkur með yfir 23.000 starfs-
menn. Danfoss A/S er með 61 verksmiðju í
20 löndum og sölufyrirtæki í meira en 100
löndum. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í
Nordborg í Danmörku.
Danfossvörur hafa þjónað Íslendingum
frá því um miðja síðustu öld og sá Héðinn
Verslun hf. lengst af um innflutning á
vörum fyrirtækisins hingað til lands. Árið
1999 keypti Danfoss A/S öll hlutabréfin í
Héðni Verslun hf. og nafninu var breytt í
Danfoss hf. sem síðan hefur annast sölu og
þjónustu á Danfossvörum á Íslandi. Hjá
Danfoss er m.a. hægt að velja úr fjöl-
breyttu úrvali kæli- og dælubúnaðar sem
nýtist fiskvinnslum, fiskimjölsverksmiðj-
um og skipum, bæði stórum og smáum. Þá
hafa vökvakerfi frá Danfoss Power Sol-
utions reynst afar vel við þau krefjandi
skilyrði sem fylgja vinnu við sjávarútveg
þar sem hitastig getur verið mjög breyti-
legt og vinnunni fylgir oft að búnaðurinn
er í stöðugri snertingu við saltvatn. Við
slíkar aðstæður eru gerðar kröfur um
áreiðanleika og framúrskarandi eiginleika.
Vökvakerfi
Hrafn Melsted, sölufulltrúi vökvakerfa hjá
Danfoss hf. segir sjávarútvegslausnir og
stjórnbúnað fyrirtækisins hafa reynst mjög
vel bæði í skipum, bátum og öðrum iðnað-
arvélum í landi. Þar er meðal annars um
að ræða vökvabúnað fyrir spil, krana og
færibönd. Í vöruframboði þeirra má meðal
annars finna stjórnloka með álagsstýring-
um og patrónuloka sem auka sveigjanleika
við hönnun, stimpildælur og stimpilmót-
ora sem auðvelda samhæfingu kerfa og
stýringa með örstýribúnaði og öðrum hug-
búnaði. Hrafn segir Danfoss Power Sol-
utions vökvakerfin meðal annars hafa ver-
ið í sókn hjá íslenskum bátasmiðjum sem
nýti þau mjög mikið til að stýra tækjum
um borð. „Þetta er þekktur búnaður sem
áður hefur reynst vel bæði í farartækjum
og öðrum vinnuvélum þannig að menn
vita að hverju þeir ganga,“ segir Hrafn.
Dælur
Xylem dælurnar sem Danfoss hf. hefur
umboð fyrir koma víða við sögu. Þær
þjóna hita- og vatnsveitum, skólpdælu- og
hreinsistöðvum, fiskiðnaði, fiskiskipum,
matvælaiðnaði og nánast alls staðar þar
sem þörf er fyrir dælur af einhverju tagi.
Haraldur Sigurðsson, sölufulltrúi fyrir
dælur og kælibúnað segir að Flygt N-
brunndælurnar hafi markað ákveðin
þáttaskil þegar þær komu á markað á sín-
um tíma. „N-Chopper hjólið, sem dælan
byggir á, tryggir að afköstin haldast stöðug
því að dæluhjólið hreinsar sig af óhrein-
indum sem annars vilja setjast á hefð-
bundin dæluhjól og draga úr afköstum
þeirra. Hönnunin miðar einnig að því að
allt viðhald sé auðvelt og í lágmarki.“ Har-
aldur segir N-dælurnar henta við flestar
aðstæður, allt frá litlum dælubrunnum upp
í stórar frárennslisstöðvar.
Kælibúnaður
Danfoss er með yfir 80 ára reynslu af
framleiðslu á stjórnbúnaði og sjálfvirkum
lausnum fyrir kæli- og frystikerfi og er
leiðandi framleiðandi á heimsvísu. Þá segir
Haraldur lausnir Danfoss mikið notaðar til
stjórnunar á hitastigi í kæli- og frysti-
geymslum íslenskra sjávarútvegsfyrir-
tækja, hvort sem er á sjó eða landi. Dan-
foss hf. er stærsti innflutningsaðili stjórn-
búnaðar fyrir kæli- og frystikerfi hér á
landi. Með alþjóðlegan bakgrunn ásamt
góðri þekkingu á innlendum markaði get-
ur Danfoss hf. boðið bestu mögulegu vörur
og þjónustu fyrir kæli- og frystikerfi.
danfoss.is
Vökvakerfi, dælur og kæli-
búnaður frá Danfoss
Hrafn Melsted segir vökvakerfi og stjórnbúnað frá Danfoss
hafa reynst mjög vel í íslenskum sjávarútvegi.
Haraldur Sigurðsson með botnstykki úr N-Chopper dælu en
þær mörkuðu þáttaskil þegar þær komu á markað.
Vökvakerfislausnir
einnig fyrir skip
Tæknibúnaður ætlaður til notkunar á sjó mætir
erfiðustu skilyrðum. Álag óblíðrar náttúru, miklar
hitabreytingar og stöðugur ágangur af söltum sjó,
eykur þörf viðskiptavina fyrir áreiðanlegan og
skilvirkan búnað.
Danfoss hefur háþróaðan gæða vökvabúnað og kerfissérþekkingu til að mæta
kröfuhörðum viðskiptavinum um allan heim.
Vörulína Danfoss inniheldur m.a.:
• Háþróaða PVG álagsstýrða proportional stjórnloka og HIC/patronuloka.
• Öflugar H1 stimpildælur og mótora fyrir aukinn áreiðanleika og nýtni
• Þýðgengar Series 45 stimpildælur fyrir opin kerfi
• Hágæða vökvamótora á færibönd og spil
• State-of-the-art PLUS+1™ stjórnbúnað, örtölvur og hugbúnað.
Með Danfoss búnaði nærð þú stjórninni um borð.
Danfoss hf. Skútuvogi 6, 104 Reykjavík, Sími: 510 4100, www.danfoss.is