Ægir - 01.07.2016, Blaðsíða 8
8
Brimrún ehf. er umboðsfyrirtæki Fur-uno á Íslandi, stofnað í árslok 1992. Meginstarfsemi fyrirtækisins er því
á vettvangi íslensks sjávarútvegs – sala og
þjónusta við skip og báta á búnaði frá Fur-
uno. Þetta japanska merki er heimsþekkt
og íslenskum skipstjórnarmönnum að
góðu kunnugt. Að sögn Björns Árnasonar
framkvæmdastjóra hefur verið mikið að
gera í fyrirtækinu undanfarna mánuði
samfara stóraukinni smíði nýrra fiskiskipa.
Öll brúartækin í 13 fiskiskip
„Íslensk útgerðarfyrirtæki eru sem kunn-
ugt er að endurnýja fiskiskipaflotann af
meiri krafti en við höfum séð áður en nú
eru í smíðum níu íslenskir ferskfisktogarar
í erlendum skipasmíðastöðvum. Brimrún
hefur verið falið það verkefni að selja og
afhenda í þessar nýsmíðar, öll siglinga-,
fiskileitar- og fjarskiptatæki auk ýmiss
annars búnaðar. Fyrirtækin sem um er að
ræða eru Vinnslustöðin í Vestmannaeyj-
um, Hraðfrystihúsið Gunnvör og FISK Sea-
food auk Granda og Samherja sem byggja
þrjú skip hvort fyrirtæki. Auk þessara ný-
smíða er Samherji að smíða fjögur fjöl-
veiðiskip fyrir nokkur evrópsk dótturfyrir-
tæki sín og það kemur í hlut Brimrúnar að
afhenda brúartækin í þessi skip einnig.“
Björn segir að starfsstöð fyrirtækisins
hafi verið við gömlu höfnina í Reykjavík
frá upphafi eða í tæpan aldarfjórðung en
nú kalli stóraukin verkefni á nýtt húsnæði
með metri aðstöðu til að þjónusta sjávarút-
veginn. „Þessi verkefni sem ég nefndi eru
risavaxin og segja má að þau hafi sprengt
núverandi húsnæði fyrirtækisins. Við höf-
um verið að leita að betra húsnæði en það
varð úr að Faxaflóahafnir úthlutuðu okkur
lóð fyrir nýbyggingu hér á hafnarsvæði
gömlu hafnarinnar og vonandi getum við
hafist handa við bygginguna á næsta ári.
Íslensku útgerðirnar sýna okkur mikið
traust með því að fela okkur þessi verkefni
fremur en að setja þetta í hendur erlendu
skipasmíðastöðvanna. Fyrir það erum við
mjög þakklát. Augljóslega eflir þetta
Brimrún á margan hátt, starfsmönnum
fjölgar, reynsla og þekking vex og við fjár-
festum til framtíðar sem gerir okkur kleift
að gera betur, þ.m.t. veita betri þjónustu,“
segir Björn ennfremur.
Skjáveggir valda byltingu
Á þessu ári hóf Brimrún samstarf við jap-
anska fyrirtækið Mitsubishi um skjáveggi
fyrir fiskiskip. Mitsubishi er vant því að
annast skjáveggjalausnir af ýmsum stærð-
argráðum, eins og t.d. á heimsmeistara-
mótinu í knattspyrnu í Brasilíu fyrir tveim-
ur árum, þar sem tugir iðnaðarskjáa eru
látnir mynda einn skjá. „Þeir sýndu því
strax áhuga að vinna með Brimrún að því
að smíða skjávegg fyrir skip, þó þessir
veggir verði ekki stærri en svo að aðeins
nokkra skjái þurfi í þá. Fyrir Mitsubishi og
Brimrún einnig, var það alveg nýtt að
vinna úr gögnum og merkjum frá hinum
ýmsu siglinga- og fiskileitartækjum og
varpa þeim á skjávegg. Vinnan hefur
gengið mjög vel og Brimrún mun sýna af-
raksturinn á sýningunni Sjávarútvegur
2016 í lok september n.k.“
Björn segir kosti skjáveggja í brú skips-
ins vera m.a. þá að myndir og aðrar upp-
lýsingar allra siglinga- og fiskileitartækja
skipsins birtast á einum stórum, marg-
skiptum skjá og aðrir smærri skjáir verði
óþarfir. „Skipstjórnarmaðurinn getur
hannað og valið sína eigin framsetningu
og verið með eins margar fastar myndir og
hann kýs og öllu er stjórnað með aðeins
einni mús. Skjáveggurinn verður tengdur
yfir ethernet og hægt er að senda upplýs-
Tvískiptur MaxSea skjár. Annars vegar skjár með ENC korti (viðurkennd lögleg sjó-
kort) og hins vegar nýtt tví- og þrívíddar umhverfi í anda MaxSea 10 og 12 sem hefur
slegið í gegn.
Furuno FSV-25 sónar. Á skjánum eru mjög greinilegar kolmunnatorfur, vel yfir 7000
metra frá skipinu.
brimrun.is