Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.2016, Blaðsíða 158

Ægir - 01.07.2016, Blaðsíða 158
Stærri skipsskrúfur spara gríðarlega orku Það er auðvelt að sýna fram á að hægt að spara gífurlegar upphæðir í olíukaupum með því að stækka skrúfur fiskiskipaflotans og draga úr snún- ingshraða. Ég hef hamrað á þessu í fjölda- mörg ár við takmarkaðar undirtektir. Stað- reyndin er sú að um 80% af allri orkunotk- un skipsins fer í að knýja skrúfuna en út- reikningar okkar og mælingar sýna að fimm metra skrúfan er á bilinu 30-40% sparneytnari en þriggja metra skrúfa,“ segir Sævar M. Birgisson, skipatæknifræð- ingur hjá Skipasýn. Nú er verið að leggja lokahönd á smíði tveggja skipa fyrir Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum og Hraðfrystihúsið Gunnvör í Hnífsdal en þau eru bæði hönnuð af Skipasýn. Lítil framþróun í gangi „Hverju sem er um að kenna þá hefur mjög lítill árangur náðst hjá skipaflotanum í að spara orku þrátt fyrir háværar kröfur alþjóðasamfélagsins um að við drögum úr orkusóun og tökum meira tillit til náttúr- unnar. Flugvélar nota t.d. um 50% minna eldsneyti í dag en fyrir 40 árum en við er- um enn að brenna jafn mikilli olíu á fiski- skipunum og við gerðum fyrir áratugum. Hér þarf að verða hugarfarsbreyting,“ seg- ir Sævar. Skipasýn ehf. var stofnað árið 1986 en fyrirtækið hefur sérhæft sig í hönnun á fiskiskipum, breytingum og endurbygg- ingu skipa. Hefur Skipasýn haft með höndum fjölmörg nýsmíðaverkefni á liðn- um árum og á m.a. ráðandi hlut í sam- starfsfyrirtækinu ShipCon í GDansk í Pól- landi sem er umsvifamikið þegar kemur að hönnun nýrra skipa og endurbótum á eldri. Þessi hugmynd að stækka skrúfu skips- ins er ekki ný af nálinni að sögn Sævars enda var gripið til hennar í olíukreppunni á 8. áratugnum þar sem vitað var að stærri skrúfa myndi skila mun betri eldsneytisnýtingu. Hann bætir við að stærri skrúfa skagi lengra niður en þær minni og því verði að huga að dýpi í höfn- um en í langflestum þeirra sé þetta ekkert vandamál. Við spyrjum Sævar hvers vegna ekki sé búið að koma svona orku- sparandi búnaði fyrir í öllum togskipum flotans? „Framleiðendur búnaðarins hafa ráðið ferðinni allt of mikið. Flestar díselvélar í okkar togskipaflota eru 1.000 til 5.000 KW og snúast 750 til 1.000 snúninga á mínútu. Tiltölulega auðvelt er að ná snúningshraða á skrúfunni niður í 150-200 snúninga en til að ná enn betri nýtni á skrúfuna þarf að ná snúningshraðanum niður í helst 60-70 snúninga. Þetta er ekki tæknilega flókið en kostar aðeins meira því m.a. þarf 2ja þrepa gírbúnað til að ná þessum árangri. Þarna er við ákveðin tregðulögmál og vana hjá framleiðendum að ræða og þeim hefur einhvern veginn tekist að sannfæra út- gerðirnar um að þetta skipti ekki miklu máli. Með aukinni umhverfis- vitund og kröfu um orkusparnað hafa augu manna opnast fyr- ir kostum þessarar tækni,“ segir Sævar. Íslensk orka fyrir flotann? Sævar og félagar hjá Skipasýn hafa lengi reynt að stuðla að auknum orkusparnaði við hönnun sinna skipa og hafa verið í far- arbroddi á því sviði. Sævar nefnir annað spennandi dæmi í þessum efnum sem snýst um tilraunaverkefni um að knýja ís- lenskan línubát með metanoli en það verkefni er á byrjunarstigi. „Við komum að þessu með nokkrum öðrum fyrirtækjum og ef þetta gengur vel opnast möguleikar á því að knýja stóran hluta íslenska fiski- skipaflotans með innlendum orkugjafa sem að auki væri stórt innlegg í þá kolefn- isjöfnum sem okkur er gert að taka þátt í. Vonandi verður hægt að segja frá þessu verkefni síðar,“ segir Sævar hjá Skipasýn að lokum. Sævar Birgisson, framkvæmdastjóri t.h. og Birgir Sævarsson, verkefnastjóri hjá Skipasýn. Þrívíddarteikning af 95 m löngum frystitogara sem Skipasýn hefur hannað fyrir rúss- neskan viðskiptavin. Á þessu skipi er gert ráð fyrir tveimur skrúfum, 5 m í þvermál. skipasyn.is 158
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.