Ægir - 01.07.2016, Blaðsíða 28
28
Friðrik A. Jónsson mun kynna ýmsar nýjungar á sýningunni Sjávarútvegur 2016 í lok
september, m.a. ýmsan búnað frá
Simrad, Olex, Thrane, ICOM og
Vingtor. Tæknin telur plottera, rad-
ara, gagnavistun og samskiptatæki.
„Við verðum með nokkuð af nýjum
tækjum á sýningunni. Hluti af
þeim eru ECDIS-plotterinn sem er
uppi á skjánum alla tíð og síðan
PLECDIS sem er pappírskortalaus
plotter. Það sem er sérstakt við
okkar ECDIS-búnað er að það er
hægt að fá hann sem fjölnotatæki,
það er að hægt er að nýta hann sem dýpt-
armæli eða radarskjá samhliða plotternum
og ýmislegt fleira sem fjölnotatæki bjóða
upp á. Þetta komum við til með að sýna
ásamt ýmsum fleiri fjölnota tækjum frá
Simrad,“ segir Ásgeir Örn Rúnarsson, sölu-
stjóri FAJ.
„Við verðum með nýja sjálfstýringu
fyrir smærri skip og báta. Hún er mjög nett
en býr yfir öllum þeim kostum sem smærri
bátar þurfa á að halda. Svo erum við auð-
vitað með okkar þekktu Simrad-stýringar.“
Vistaðir ferlar og dýpisgögn
Simrad býður nú þjónustu þar sem þeir
sem nota fjölnotatæki geta tekið upp eigin
ferla yfir siglingar sínar og vistað þau gögn
í gegnum veflæga þjónustu sem heitir In-
side Genesis. Þannig er hægt að setja inn á
netið ferla hvers og eins og í staðinn fæst
kort sem sýnir dýptarprófíla, ekki bara þar
sem sjást grynningar og sker, heldur sést
botnharkan líka, hvort sem um harðan eða
mjúkan botn er að ræða. Simrad er með
breiða línu radara, annars vegar litla breið-
bandsradara sem eru innbyggðir í lokaðan
hatt sem fer upp á stýrishúsið eða upp í
mastur og hins vegar IMO samþykkta rad-
ara sem eru þá fyrir stærri skip. „Við verð-
um líka með nýjan GPS-móttakara frá Lars
Thrane sem er í senn stefnugjafi, loftþrýst-
ings- og hitamælir sem og veltu- og stamp-
mælir. Í honum eru MEMS nanótækni
skynjarar sem auka mikið námkvæmni
hans.“
Ný samskiptatæki frá Vingtor
„Við verðum með fólk frá okkar birgjum,
til dæmis Navico sem er
framleiðandi Simrad og
Lowrance, sem segja frá
þeim nýjungum sem eru í
boði á sýningunni. Þá verð-
ur hjá okkur maður frá
Vingtor Zenitel, sem segir
frá nýjum IP kerfum. Menn
þekkja til dæmis marg-
reyndu vélsímana frá Ving-
tor. Við sýnum einnig fjar-
skiptatæki sem notuð eru
um borð til samskipta fyrir
áhöfnina. Það eru talstöðv-
ar frá ICOM í Japan sem
nota þráðlaus WiFi kerfi og eru með sínar
eigin IP-tölur. Þá eru menn með búnaðinn
ýmist á spöng á höfðinu eða í hjálmi og
geta talast við í rauntíma. Báðir aðilar geta
talað saman í einu í stað þess að þurfa á
ýta á takka til að tala og sleppa honum til
að hlusta. Loks verðum við með nýja dýpt-
armæla frá Simrad, sjálfstætt standandi,
annars vegar með 9 tommu skjá og hins
vegar 16 tommu skjá. Í sama formi eru
radarskjáir sem varpa þá radarmynd á
skjáina. Minni tækin henta vel fyrir
smærri báta þar sem er takmarkað pláss
en þau 16 tommu eru hentug fyrir stærri
skip. Þau eru til að mynda með útgang fyr-
ir aukaskjá ef menn vilja birta annars veg-
ar dýptarmyndina og hins vegar radar-
myndina á fleiri skjám,“ segir Ásgeir Örn
Rúnarsson.
Ásgeir Örn Rúnarsson, sölustjóri FAJ við skjái sem sýna kort af hafsbotninum.
FAJ kynnir
fjölmargar
nýjungar
faj.is