Ægir - 01.07.2016, Blaðsíða 142
142
Optimar KAPP ehf. í Garðabæ hefur undanfarin ár verið vaxandi aðili í framleiðslu og sölu á ísþykkni-
búnaði og kæli- og frystikerfum fyrir sjáv-
arútveg og verslanir á Íslandi. Eigendur
fyrirtækisins eru hjónin Freyr Friðriksson
og Elfa Hrönn Valdimarsdóttir en þau
stofnuðu á sínum tíma véla-, kæli- og
renniverkstæðið KAPP ehf. KAPP hefur
verið viðloðandi kæli- og frystimarkaðinn
í allmörg ár en fyrstu árin snérist rekstur-
inn fyrst og fremst um þjónustu og lausnir
fyrir verslanir og aðra aðila. Við kaupin á
Optimar Ísland ehf. hefur starfsemin færst
í auknum mæli inn á svið sjávarútvegsins,
meðal annars með framleiðslu á ísþykkn-
búnaði undir vörumerkinu OPTIM-ICE og
með því að bjóða alhliða þjónustu við
fiskiskip og fiskvinnslur sem kæla hráefni.
Fyrirtækin tvö, KAPP ehf og Optimar Ís-
land ehf. voru sameinuð um síðustu ára-
mót.
Tæplega helmingur viðskiptavina Op-
timar KAPP ehf. kemur í dag úr sjávarút-
vegi og þegar blaðamaður Ægis náði tali af
Frey var hann einmitt á leiðinni vestur á
Snæfellsnes til að taka þátt í að setja OP-
TIM-ICE ísþykknibúnað um borði í Rifsnes
SH, línubát Hraðfrystihúss Hellissands. Í
framhaldinu verður samskonar búnaður
settur um borð í fiskveiðiskipið Örvar SH
sem er í eigu sama aðila.
Vaxandi vægi sjávarútvegsins
Freyr segir að á sjávarútvegssýningunni í
Laugardalshöll verði lögð áhersla á að
kynna starfsemi fyrirtækisins og þær
lausnir sem það býður. „Aðferð okkar við
kælingu á fiski með Optim-ICE búnaðin-
um er klárlega ein sú besta og hagkvæm-
asta sem til er á markaðnum í dag því gríð-
arlega hröð niðurkæling og eiginleikar ís-
þykknisins fara einstaklega vel með hrá-
efnið og rekstraröryggið er mikið,“ segir
Freyr. Hann segir að annar kælitengdur
búnaður eins og CARRIER kæli & frystivél-
arnar verði einnig kynntur en fyrirtækið
hefur selt þessar vélar undanfarin ár. Þá
muni þau kynna véla- og renniverkstæði
fyrirtækisins sem er afar vel tækjum búið.
„Síðast og ekki síst munum við kynna
kæli- og frystiþjónustu okkar sem nær frá
litlum kerfum upp í þau allra stærstu því
þótt vægi sjávarútvegsins hafi farið vax-
andi í starfseminni undanfarin ár höldum
við áfram úti öflugri þjónustu við aðrar
greinar íslensks atvinnulífs en þar á meðal
þjónum við tæplega 40 verslunum víða
um land.
Leiga á kæli- og frystivögnum
Freyr segir að markvisst hafi verið unnið
að því að auka þjónustu fyrirtækisins og
byggja fleiri stoðir undir reksturinn. „Eitt
af því sem við munum kynna á sýningunni
í Laugardalshöll er leiga á kæli- og frysti-
vögnum sem hefur mælst mjög vel fyrir.
Við erum nú þegar komin með 32 slíka
vagna í leigu til stórra aðila í flutningageir-
anum eins og skipafélaga, útgerðar- og
verslunarfyrirtækja.“ Hann segir að kæli-
vagnaleigan sé rökrétt framhald af starfi
fyrirtækisins í gegnum tíðina enda séu
kæli- og frystikerfi sérsvið þeirra. „Nú get-
um við boðið kæli- og frystivagna með 24
tíma þjónustu alla daga árið um kring. Við
erum með stöðugt eftirlit með kælivögn-
unum okkar og vitum til dæmis á undan
bílstjórunum, sem aka dráttarbílunum, ef
kælivélar bila eða ef eitthvað kemur upp á.
Þá getum við strax látið vita.“
Freyr segir að uppbygging fyrirtækisins
á undanförnum árum hafi verið skemmti-
legur tími. „Árangur okkar má að verulegu
leyti þakka frábæru starfsfólki því maður
kemst ekki langt nema að vera með gott
fólk með sér,“ segir Freyr Friðriksson hjá
Optimar Kapp.
Optimar KAPP kynnir fjölbreyttar
lausnir í kæli-og frystikerfum
Elfa Hrönn Valdimarsdóttir og Freyr Friðriksson, eigendur Optimar KAPP ehf.
Freyr Friðriksson ásamt Trausta Ós-
valdssyni þjónustustjóra.
Unnið að uppsetningu á BP-120 ís-
þykknibúnaði um borð í Rifsnesi SH-44.
optimar.is