Ægir - 01.07.2016, Blaðsíða 74
Sónar ehf. á Hvaleyrarbraut 2 í Hafn-arfirði er eitt af leiðandi fyrirtækjum á landinu í innflutningi og þjónustu
á siglinga-, fjarskipta- og fiskileitartækjum
fyrir skip og báta. Fyrirtækið flytur inn
vörur frá heimsþekktum framleiðendum
s.s. JRC, Sailor, Kaijo, SeaTel, Wesmar,
ComNav, Raytheon Anschutz, Tranberg,
Kannad, McMurdo o.fl. Stofnendur Sónar
voru þeir Vilhjálmur Árnason fram-
kvæmdastjóri og Guðmundur Bragason,
sölu- og markaðsstjóri en starfsmenn eru
nú sjö talsins.
Leggjum áherslu á þjónustuna
„Við leggjum metnað okkar í að eiga eða
geta útvegað öll þau siglinga- og fjar-
skiptatæki sem þarf til stjórnunar um borð
í skipum við Ísland. Við sækjumst eftir því
að eiga gott samstarf við notendur þeirra
til þróunar lausna og finnum að meðal
framleiðanda er mikil virðing borin fyrir
íslenskum skipstjórnendum og hlustað er
á þeirra tillögur og óskir. Íslenski fiski-
skipaflotinn er mjög framarlega þegar
kemur að tækjavæðingu og við hjá Sónar
getum boðið fjölbreyttar lausnir í siglinga-
og fjarskiptatækjum, bæði í stærri ný-
smíðaverkefni sem og meðalstóra og
smærri báta. Við höfum alltaf lagt mikla
áherslu á að þjónusta við tækin sem við
seljum sé eins og best verði á kosið og
finnum að það kunna notendur þeirra vel
að meta,“ segir Guðmundur Bragason,
sölu- og markaðsstjóri í samtali við Ægi.
Sónar ehf. hefur selt siglingatækja-
pakka í margar af öflugustu bátum lands-
ins sem smíðaðir hafa verið úr trefjaplasti
á undanförnum árum. Dæmi um nýlega
báta sem eru með allan tækjapakkann frá
Sónar eru Vigur SF-80 og Gullhólmi SH-
201, báðir glæsilegir og vel útbúnir bátar.
Sónar ehf. vinnur nú við uppsetningu
tækjapakka í nýsmíðar fyrir Stakkavík
ehf. og Einhamar Seafood ehf. svo dæmi
séu nefnd.
Nýir dýptarmælar frumsýndir
Sónar er með bása nr. B-4 og B-15 á sýn-
ingunni og mun þar viðra allt það nýjasta
sem er að finna frá þeirra birgum. Auk
starfsmanna Sónars munu erlendir fulltrú-
ar framleiðenda verða til skrafs og ráða-
gerða og svara öllum spurningum sem upp
kunna að koma.
„Á sýningunni munum við t.d. frum-
sýna nýjan fjölgeisla dýptarmæli frá
WASSP. Fjölgeisla dýptarmælar hafa sann-
að mikilvægi sitt, m.a. hjá uppsjávar-
skipum þar sem hann hefur skipt sköp-
um við makrílleit og í öðrum veiðiskap.
Sífellt fleiri skipstjórnendur og útgerðar-
stjórar gera sér grein fyrir hvað fjölgeisla
dýptarmælar eru öflug tæki við fiskileit.
Einnig sýnum við nýjan Split Beam dýpt-
armæli frá Kaijo sem heitir KSE-300 en við
fullyrðum að 70 kHz útgáfa hans sé sú öfl-
ugasta af 70 kHz Split Beam mælum á
markaðnum. Þá frumsýnum við nýja dýpt-
armæla frá JRC og kynnum JRC JLN-652BB
Doppler Current straummælinn sem hefur
fengið frábærar móttökur á íslenska mark-
aðnum,“ segir Guðmundur ennfremur.
Sjónvarpskúlur og myndavélar
„Margt fleira verðum við með til sýnis í
Laugardalshöllinni dagana 28.-30. septem-
ber. Við munum t.d. kynna nýjar sjón-
varpskúlur frá SeaTel ásamt VSAT og
GMDSS fjarskiptabúnaði frá SAILOR. Þá
verða kynntar ýmsar spennandi lausnir í
myndavélakerfum og við ætlum að sýna
gestum hágæða IP myndavélar og hita-
myndavélar frá Raymarine sem og vand-
aðar myndavélar frá AlphaCam. Það verð-
ur margt spennandi í boði hjá okkur og við
hvetjum skipstjórnendur og útgerðarmenn
til að kíkja við og kynnast því betur.
Áherslan verður lögð á vandaðan sýning-
arbás og að hafa létt yfir þessu. Við hjá
Sónar ehf. hlökkum mikið til að taka á
móti gestum sýningarinnar,“ segir Guð-
mundur að lokum.
Nýr Kaijo KSE-300 Multi Beam dýptarmælir
verður frumsýndur á sýningunni í sýningarbás Sónars.
Vilhjálmur Árnason, framkvæmdastjóri Sónar (t.v.) og Guðmundur
Bragason, sölu- og markaðsstjóri.
Sónar með siglingatækin
sonar.is
74