Ægir

Volume

Ægir - 01.07.2016, Page 74

Ægir - 01.07.2016, Page 74
Sónar ehf. á Hvaleyrarbraut 2 í Hafn-arfirði er eitt af leiðandi fyrirtækjum á landinu í innflutningi og þjónustu á siglinga-, fjarskipta- og fiskileitartækjum fyrir skip og báta. Fyrirtækið flytur inn vörur frá heimsþekktum framleiðendum s.s. JRC, Sailor, Kaijo, SeaTel, Wesmar, ComNav, Raytheon Anschutz, Tranberg, Kannad, McMurdo o.fl. Stofnendur Sónar voru þeir Vilhjálmur Árnason fram- kvæmdastjóri og Guðmundur Bragason, sölu- og markaðsstjóri en starfsmenn eru nú sjö talsins. Leggjum áherslu á þjónustuna „Við leggjum metnað okkar í að eiga eða geta útvegað öll þau siglinga- og fjar- skiptatæki sem þarf til stjórnunar um borð í skipum við Ísland. Við sækjumst eftir því að eiga gott samstarf við notendur þeirra til þróunar lausna og finnum að meðal framleiðanda er mikil virðing borin fyrir íslenskum skipstjórnendum og hlustað er á þeirra tillögur og óskir. Íslenski fiski- skipaflotinn er mjög framarlega þegar kemur að tækjavæðingu og við hjá Sónar getum boðið fjölbreyttar lausnir í siglinga- og fjarskiptatækjum, bæði í stærri ný- smíðaverkefni sem og meðalstóra og smærri báta. Við höfum alltaf lagt mikla áherslu á að þjónusta við tækin sem við seljum sé eins og best verði á kosið og finnum að það kunna notendur þeirra vel að meta,“ segir Guðmundur Bragason, sölu- og markaðsstjóri í samtali við Ægi. Sónar ehf. hefur selt siglingatækja- pakka í margar af öflugustu bátum lands- ins sem smíðaðir hafa verið úr trefjaplasti á undanförnum árum. Dæmi um nýlega báta sem eru með allan tækjapakkann frá Sónar eru Vigur SF-80 og Gullhólmi SH- 201, báðir glæsilegir og vel útbúnir bátar. Sónar ehf. vinnur nú við uppsetningu tækjapakka í nýsmíðar fyrir Stakkavík ehf. og Einhamar Seafood ehf. svo dæmi séu nefnd. Nýir dýptarmælar frumsýndir Sónar er með bása nr. B-4 og B-15 á sýn- ingunni og mun þar viðra allt það nýjasta sem er að finna frá þeirra birgum. Auk starfsmanna Sónars munu erlendir fulltrú- ar framleiðenda verða til skrafs og ráða- gerða og svara öllum spurningum sem upp kunna að koma. „Á sýningunni munum við t.d. frum- sýna nýjan fjölgeisla dýptarmæli frá WASSP. Fjölgeisla dýptarmælar hafa sann- að mikilvægi sitt, m.a. hjá uppsjávar- skipum þar sem hann hefur skipt sköp- um við makrílleit og í öðrum veiðiskap. Sífellt fleiri skipstjórnendur og útgerðar- stjórar gera sér grein fyrir hvað fjölgeisla dýptarmælar eru öflug tæki við fiskileit. Einnig sýnum við nýjan Split Beam dýpt- armæli frá Kaijo sem heitir KSE-300 en við fullyrðum að 70 kHz útgáfa hans sé sú öfl- ugasta af 70 kHz Split Beam mælum á markaðnum. Þá frumsýnum við nýja dýpt- armæla frá JRC og kynnum JRC JLN-652BB Doppler Current straummælinn sem hefur fengið frábærar móttökur á íslenska mark- aðnum,“ segir Guðmundur ennfremur. Sjónvarpskúlur og myndavélar „Margt fleira verðum við með til sýnis í Laugardalshöllinni dagana 28.-30. septem- ber. Við munum t.d. kynna nýjar sjón- varpskúlur frá SeaTel ásamt VSAT og GMDSS fjarskiptabúnaði frá SAILOR. Þá verða kynntar ýmsar spennandi lausnir í myndavélakerfum og við ætlum að sýna gestum hágæða IP myndavélar og hita- myndavélar frá Raymarine sem og vand- aðar myndavélar frá AlphaCam. Það verð- ur margt spennandi í boði hjá okkur og við hvetjum skipstjórnendur og útgerðarmenn til að kíkja við og kynnast því betur. Áherslan verður lögð á vandaðan sýning- arbás og að hafa létt yfir þessu. Við hjá Sónar ehf. hlökkum mikið til að taka á móti gestum sýningarinnar,“ segir Guð- mundur að lokum. Nýr Kaijo KSE-300 Multi Beam dýptarmælir verður frumsýndur á sýningunni í sýningarbás Sónars. Vilhjálmur Árnason, framkvæmdastjóri Sónar (t.v.) og Guðmundur Bragason, sölu- og markaðsstjóri. Sónar með siglingatækin sonar.is 74
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.