Ægir - 01.07.2016, Blaðsíða 86
86
Miklar framkvæmdir standa nú yf-ir í höfninni í Þorlákshöfn. Helsta markmiðið með framkvæmdun-
um er að bæta þar aðstöðu, einkum fyrir
stærri skip með reglubundnar fragtsigling-
ar milli Evrópu og Þorlákshafnar að leiðar-
ljósi. „Við ætlum okkur að koma á vikuleg-
um flutningum á milli Þorlákshafnar og
Evrópu í framtíðinni. Það breytir miklu að
stytta flutningstímann, sérstaklega á fersk-
vöru til útflutnings og einnig til innflutn-
ings. Einnig skiptir miklu máli að minnka
útblástur frá skipum með styttri siglinga-
tíma til og frá Íslandi með því að sigla til
Þorlákshafnar,“ segir Hjörtur Jónsson,
hafnarstjóri í Þorlákshöfn.
Flutningur á ferskum fiski
Hann segir að þar sem styttra sé að sigla til
Þorlákshafnar en Reykjavíkur, til dæmis
frá Evrópu, og höfnin verði innan skamms
mun dýpri og rýmri en verið hefur, hljóti
það að vera góður kostur fyrir fyrirtæki
með hafsækna starfsemi að koma sér fyrir
í Þorlákshöfn. „Hér eru þegar öflug fyrir-
tæki í útflutningi á ferskum fiski. Fyrir þau
og önnur fiskvinnslufyrirtæki í nágrenni
Þorlákshafnar hlýtur það að vera góður
kostur að geta flutt fiskinn út ferskan héð-
an með skipum til Evrópu,“ segir Hjörtur.
„Þegar þessum framkvæmdum lýkur
verðum við mjög vel í stakk búin til að
taka á móti stærri skipum. Þá verðum við
komin með snúningssvæði sem er 230
metrar í þvermál og sem nýtast mun sér-
staklega stærri skipum. Það auðveldar
flutningaskipunum mjög að athafna sig
innan hafnarinnar. Auk þess verður meira
pláss fyrir skipin við bryggjurnar. Ætlunin
er að búa með þessu í haginn og bjóða
betri aðstöðu og þjónustu fyrir flutninga-
skip og vissulega að bæta alla aðstöðu fyr-
ir þau skip og báta sem nýta höfnina í
dag.“
Byggjum til framtíðar
„Við erum að byggja okkur upp til framtíð-
ar með því að bæta aðstæður og gæði
hafnarinnar. Við teljum okkur hafa mikla
möguleika til framtíðar í þjónustu við
flutninga á sjó. Kuldaboli ehf. sem rekur
frystigeymslu og skipaþjónustu auk lönd-
unargengis úr fiskiskipum er á staðnum.
Við bjóðum því upp á góðar aðstæður og
við höfnina er þjónusta sem nýtist öllum.
Við erum líka með öflugan dráttarbát til að
aðstoða stærri skip og með vel þjálfaðan
og góðan mannskap. Stefnan er að bjóða
hér bestu þjónustu á hagstæðu verði. Með
endurbótunum á höfninni sköpum við
mjög góðar aðstæður fyrir fyrirtæki með
hafsækna starfsemi. Við höfum mikið
landrými til bygginga og lóðir fyrir fyrir-
tæki nálægt höfninni,“ segir Hjörtur.
72.000 tonn af vörum
Skipakomur á síðasta ári til Þorlákshafnar
voru heldur færri en árið áður en þar
munar mest um minni útflutning á vikri.
Um höfnina fóru þó vörur upp á samtals
72.000 tonn, bæði inn- og útflutningur. Það
komu 33 flutningaskip til hafnarinnar á
síðasta ári og komur fiskiskipa voru 1.594.
Að auki kom Herjólfur í 346 skipti. Flutn-
ingaskipin eru ýmist að sækja vikur og
sand eða koma með áburð og ýmsar aðrar
vörur. Í rekstri hafnarinnar vega landanir
fiskiskipa þyngst. Því er það nokkurt
áhyggjuefni að sögn Hjartar að umtals-
verðar bolfiskveiðiheimildir hafi verið
seldar úr sveitarfélaginu í sumar.
olfus.is
Stefnt að reglubundnum fragt-
siglingum til og frá Þorlákshöfn
Hjörtur Jónsson, hafnarstjóri í Þorlákshöfn.
Komur fiskiskipa til Þorlákshafnar voru 1.594 talsins á síðasta ári.