Ægir - 01.07.2016, Blaðsíða 104
104
Hver einasta sekúnda skiptir máli þegar maður fellur í sjó eða vatn. Við þær aðstæður hefur marg-
sannað sig hvert gildi vandaðs björgunar-
búnaðar er en hér á landi hefur um ára-
tugaskeið verið framleiddur öflugur bún-
aður til að bregðast við því þegar maður
fellur fyrir borð, svokallað Markúsarnet.
Pétur Th. Pétursson, framkvæmdastjóri
Markus Lifenet ehf. í Hafnarfirði segir
Markúsarnetið henta öllum gerðum skipa
og báta, flutningaskipum, skemmtibátum,
skútum og þannig mætti áfram telja. Mikill
meirihluti framleiðslunnar fer á erlendan
markað og því er Markúsarnetið nú orðið
þekkt um allan heim.
Pétur leggur mikla áherslu á að fram-
leiðsla fyrirtækisins standist alþjóðlegar
kröfur og hefur það þegar fengið ISO
9001:2008 gæðavottun Lloyd´s Register
Quality Assurance í Svíþjóð til hönnunar
og framleiðslu á björgunarbúnaði fyrir
skip og báta og umhverfi á sjó og vötnum.
Þetta segir hann aðalforsendu þess að fyr-
irtækið geti framleitt og selt björgunar- og
öryggisbúnað fyrir skip um allan heim og
uppfyllt kröfur sem gerðar eru til slíks
búnaðar samkvæmt SOLAS, alþjóðasam-
þykktinni um öryggi á heimshöfunum og
reglum einstakra aðildarríkja IMO, Al-
þjóða Siglingamálastofnunarinnar.
Markúsarnetið er framleitt í mismun-
andi útfærslum eftir þeirri notkun sem því
er ætlað. Bæði er um að ræða sérhönnuð
net til björgunar á mönnum í sjó og einnig
net sem fest eru á borðstokk skipa og báta,
klifurnet eða sérstök net til að draga mann
um borð.
„Fyrir árið 2000 var nóg að hafa sam-
þykki fyrir búnaðinum í nokkrum viður-
kenndum ríkjum á 5 ára fresti, en eftir
2000 jukust kröfurnar og gerð var krafa
um að siglingayfirvald í framleiðslulandi
og flokkunarfélag tækju út vöruna og vott-
uðu að hún uppfyllti settar kröfur. Markús-
arnet af gerðinni MS var viðurkennt af Llo-
yd´s Register EMEA árið 2000 og hefur
verið endurnýjuð fjórum sinnum eftir
það,“ segir Pétur.
Þær kröfur sem framleiðsla Markúsar-
netsins uppfyllir tryggja útgerðaraðilum að
búnaðurinn er framleiddur til að standast
íslenskar aðstæður, bæði á sjó og landi og
að búnaðurinn sé einnig yfirfarinn reglu-
lega, bæði af áhöfn og utanaðkomandi að-
ila sem viðurkenndur er af viðkomandi
siglingayfirvöldum og framleiðanda.
Markus Lifenet ehf. framleiðir einnig
fleiri gerðir björgunarbúnaðar, s.s. klifur-
net, veltinet, neyðarstiga, slæðikörfu og
björgunarlínur, sem styðja við Markúsar-
netið og mæta sértækum kröfum fyrir
hvert skip. „Auk þess að bjóða viðurkennd-
ar lausnir til að bjarga fólki úr sjó bjóðum
við útgerðaraðilum ráðgjöf um hvernig
þeir geti best uppfyllt þessar kröfur og að-
lagað þær að sínum rekstri,“ segir Pétur.
The Markus net
Markus Lifenet Ltd. is specialised in
development and manufacture of a
man overboard recovery products,
made for all types of boats, ships,
offshore installations, quay areas
and similar land based water sides.
The Markusnet design is based
on many years of development and
experience. Every part of the unit
has specific purpose to make the
Markusnet most reliable and effec-
tive to retrieve man overboard in
hazardous situations at sea.
Markúsarnetið til bjargar
þegar líf liggur við
Pétur Th. Pétursson, framkvæmdastjóri Markus Lifenet ehf. í Hafnarfirði.
markusnet.com
Losaðu tengilínu og hylki. Taktu um handfang á bakhlið og færðu hylkið að björgunarstað. Taktu um háls
kastlínupokans og opnaðu lásinn á honum. Taktu um útkant netsins og hvolfdu síðan lyftilínum í sjóinn. Um leið og
kastpokanum er kastað vindmeginn við manninn, er netstykkið látið falla fyrir borð. Dragðu hratt inn slaka á tengilínu
og lyftilínum og gefðu það síðan út til mannsins eftir því sem hann dregur netið að sér.
Hafðu átak á línunum allan tímann. Leyfðu manninum í sjónum að fara í netið, helst sitjandi og í nokkurri
fjarlægð frá skipinu. Nýtið ykkur ölduna þegar þið dragið manninn að og byrjið að lyfta honum upp.
Lloyd’s Register / SOLAS gerðar viðurkenning nr.: SAS S100116
Viðurkenning Siglingastofnunar nr: 06.11.09.01
Nánari upplýsingar má fá í gegnum vef okkar:
www.markusnet.com
Maður fyrir borð öruggi og björgun er okkar viðfangsefni.
Framleiðandi: Markus Lifenet Ehf. Breiðvangur 30, IS-220 Hafnarfirði.
Sími: 565 1375 Fax: 565 1376 Netfang: markuslifenet@simnet.is