Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1998, Side 73
Guðrún Ragnarsdóttir
Frá fagdeildum
Fagdeíld bamahiúkrunar
ræðínga í Dublin
Síðastliðið vor fæddist sú hugmynd í
stjórn fagdeildar barnahjúkrunar-
fræðinga að bregða út af vananum
varðandi fræðslu fyrir félagsmenn og
færa hana út fyrir landsteinana.
Upphafið að þessari hugmynd
var sú að við fengum boð um að
skoða sumarbúðir fyrir langveik börn
sem stofnaðar voru af Paul Newman
og eru skammt frá Dublin á írlandi.
Einnig stóð til boða að heimsækja
barnasjúkrahús í Dublin. Því miður
kom boð á síðustu stundu um að
þeir treystu sér ekki til að taka á móti
hópnum, svo ekkert varð úr því.
Undirtektir félaga í fagdeildinni voru
framar vonum og var lagt upp í mjög
skipulagða ferð þann 21. nóvember
síðastliðinn með 21 félagsmann inn-
anborðs í breiðþotu Atlanda á vit
nýrra ævintýra. Ferðin stóð í 4 daga.
Gist var á hóteli í hjarta borgarinnar
þar sem gleði og samstaða tók
völdin. Einkennandi var að hverja
lausa stund, hvort sem var yfir
málsverði, bjórglasi eða í rútu barst
talið fljótlega aö hjúkrun og voru því
haldnir fjölmargir óformlegir fagfundir.
Þar sem dagskráin var skipulögð
með alla möguleika í huga, þá var
haldinn fræðsludagur á sunnudegin-
um og fórum við suður á bóginn
með lest eldsnemma að morgni í
dynjandi rigningu og roki. Ákvörðun-
arstaður okkar var „The Court
Hotel", Killiney Bay, sem er um 1
klst. akstur frá Dublin. Þetta er sér-
lega glæsilegt hótel niðri við strönd-
ina og ráðstefnusalurinn eftir því
góður. Dagskrá var eftirfarandi:
Guðrún Ragnars sagði frá ráðstefnu
“Pediatric nursing” sem haldin var
í Washington DC.Í september
síðastliðnum
Kristín Vigfúsdóttir talaði um
sjúkrahústengda heimahjúkrun.
Gillian Holt talaði um stuðning við
fjölskyldu veika barnsins.
Helga Lára Helgadóttir fjallaði um
menntun í barnahjúkrun.
Síðan var hópvinna þar sem
hópnum var skipt í fernt og fjallað
um mál sem við teljum efst á
baugi í dag, þ.e.:
Menntun í barnahjúkrun
Gæðamál og sparnaður á barna-
deild
Barnadeildir á íslandi, hverju þyrfti að
breyta.
Þverfagleg samvinna á barnadeild.
Niðurstöður voru kynntar í lok
dagsins.
1. Menntunarmál
Varðandi menntunarmálin taldi hóp-
urinn sem um það fjallaði brýnast að
stjórnendur sjúkrahúsa legðu metn-
að sinn í að bjóða starfsfólki uppá
símenntun, þeim að kostnaðarlausu
og á vinnutíma þegar það gefst.
Einnig var talið mjög brýnt að efla
stéttarvitund hjúkrunarfræðinga og
gefa þeim jafnræði til náms. Sí-
menntun á að vera hluti af starfinu.
Mikilvægt er að auka vægi sí-
menntunar t.d. í formi reglulegra
fræðslufunda.
Foreldrar veikra barna gera kröfur
til starfsfólks. Þeir treysta frekar þeim
sem sýna öryggi við tæknileg atriði.
Þörfin fyrir fræðslu og upplýsingar til
foreldra og barna gerir þær kröfur til
Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 74. árg. 1998
73