Morgunblaðið - 01.02.2018, Síða 2

Morgunblaðið - 01.02.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2018 fyrir öll tölvurými og gagnaver Kæling Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is Við tökum út og þjónustum kæli- og loftræsti- kerfi Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Þorgerður Ingólfsdóttir, tónlistarkennari og kórstjóri, var sæmd heiðursborgaranafnbót Reykjavíkurborgar við hátíðlega athöfn í Höfða í gær. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri þakk- aði Þorgerði fyrir ómetanlegt og óeigingjarnt starf í þágu borgarinnar og þjóðarinnar allrar á sviði tónlistar og kórmenningar. Þorgerður stofnaði Kór Menntaskólans við Hamrahlið árið 1967 og síðar framhaldskór hans, Hamrahlíðar- kórinn. Fram kom við athöfnina að kórarnir hefðu haft víðtæk áhrif á íslenskt tónlistarlíf, meðal annars með tónlistaruppeldi sínu. Tónlistarkennara og kórstjóra þakkað ómetanlegt starf í þágu borgarinnar og landsins alls Morgunblaðið/Hari Þorgerður Ingólfsdóttir heiðursborgari Reykjavíkur Stuðningsmenn íslenska landsliðsins í knattspyrnu sóttu um kaup á sam- tals tæplega 53 þúsund aðgöngu- miðum á leiki liðsins á Heimsmeist- aramótinu í Rússlandi í sumar. Vefsíðan Fótbolti.net upplýsir að þetta komi fram í svari Alþjóða- knattspyrnusambandsins, FIFA. Ljóst er því að margir Íslendingar verða frá að hverfa því kvóti Íslend- inga hjá FIFA er aðeins brot af þessum fjölda. Lokað var fyrir umsóknir um að- göngumiða í gærmorgun. Dregið verður úr umsóknum og tilkynnt í síðasta lagi um miðjan mars hverjir eru þeir heppnu. 53 þúsund umsókn- ir svara til liðlega 15% landsmanna hér. Líklegt er þó að sumir umsækj- endur séu margtaldir í þessum tölum. Klara Bjartmarz, framkvæmda- stjóri Knattspyrnusambands Ís- lands, segir að KSÍ hafi ekki fengið neinar upplýsingar um fjölda um- sókna frá Íslandi. „Við höfum óskað eftir frekari upplýsingum frá FIFA. Við bíðum þolinmóð eftir því að heyra frá þeim,“ segir hún. Fleiri miðar fást ekki KSÍ hefur reynt að fá fleiri miða á leikina en þau 8% sem þeim er út- hlutað en það hefur ekki gengið. Búast má við að stór hluti um- sóknanna sé um leik Íslands við Argentínu sem fram fer í Moskvu, höfuðborg Rússlands, 16. júní. Það hefur þó ekki verið upplýst. Fyrir liggur að Íslendingar fá aðeins 3.200 aðgöngumiða á þann leik. freyr@mbl.is Fáir fá draum sinn um HM í Rússlandi uppfylltan  53 þúsund sóttu um aðgöngumiða Morgunblaðið/Skapti Stuðningsmenn Íslendingar hvöttu vel á EM í Frakklandi. Skjálftahrinunni við Grímsey er ekki lokið. Í gær voru margir skjálftar á svæðinu. Einn skjálfti var þar í fyrrinótt af stærðinni 2,6 og um klukkan 20.20 í gærkvöldi var skjálfti sem fyrstu upplýsingar bentu til að væri 3,1 stig. Það er eini skjálftinn yfir 3 að stærð. Jarðskjálftahrinan hófst norð- austur af Grímsey að morgni síðast- liðins sunnudags með skjálfta af stærðinni 4,1. Fannst hann í Gríms- ey og í byggðunum við Eyjafjörð. Eftirskjálfti 3,3 að stærð mældist skömmu síðar og fjöldi minni skjálfta hefur fylgt í kjölfarið. Jarðskjálfta- hrinan held- ur áfram  Margir skjálftar við Grímsey í gær Morgunblaðið/Golli Grímsey Íbúar láta ekki jarð- skjálfta raska ró sinni. Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is „Mér var bent á að í lögum væri um- skurður stúlkna og kvenna bannað- ur, en ekki sérstaklega bannaður á drengjum. Mér fannst það mjög merkilegt, í ljósi jafnréttisumræð- unnar og yfirlýsingar umboðsmanna barna,“ segir Silja Dögg Gunnars- dóttir, þingmaður Framsóknar- flokksins, en hún hefur lagt fram drög að frumvarpi um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/ 1940, 218. gr. a. „Hver sem með lík- amsárás veldur tjóni á líkama eða heilsu stúlkubarns eða konu með því að fjarlægja kynfæri hennar að hluta eða öllu leyti skal sæta fangelsi allt að 6 árum.“ Breytingin sem lögð er til er að orðinu „stúlkubarn“ verði breytt í „barn“ og nái því til drengja og stúlkna. Í siðareglum Læknafélags Ís- lands, Codex Ethicus, sem birtar eru á vef félagsins, segir m.a. í 4.gr.: „Hann [Læknir] getur, ef lög og úrskurðir bjóða ekki annað, synjað að framkvæma læknisverk, sem hann treystir sér ekki til að gera eða bera ábyrgð á eða hann telur ástæðulaust eða óþarft.“ Skv. upplýsingum frá embætti landlæknis eru umskurðir á drengj- um framkvæmdir af læknum, ýmist af læknisfræðilegum eða trúarlegum ástæðum. Ein slík aðgerð er skráð í gagnagrunni embættisins á heil- brigðisstofnun árið 2006, en engin síðan þá. Í tölum frá sjálfstætt starf- andi sérfræðingum eru 13 slíkar að- gerðir á tímabilinu 2010 til 2016 á drengjum undir 18 ára aldri. Emb- ættið hefur ekki upplýsingar um hvort ástæða framangreindra að- gerða hafi verið læknisfræðilegs, trúarlegs eða annars eðlis. Ekki sé tilkynninga- eða eftirlitsskylda hjá embættinu með slíkum aðgerðum og engar kvartanir vegna slíkra að- gerða hafi borist. Yfirlýsing gegn umskurði Á vef Umboðsmanns barna má finna sameiginlega yfirlýsingu gegn umskurði barna frá 30. september 2013, en hún var undirrituð af öllum umboðsmönnum barna á Norður- löndunum. Þar segir m.a. að um- skurður á ungum börnum brjóti gegn grundvallarréttindum barna skv. Barnasáttmála Sameinuðu þjóð- anna sem hefur verið lögfestur hér- lendis. Einnig að umskurður feli í sér óafturkræft inngrip í líkama drengja sem geti haft í för með sér mikinn sársauka, auk þess sem slíkri aðgerð fylgi hætta á sýkingum og öðrum vandamálum. Eðlilegt sé að drengir sem vilji láta umskera sig af trúar- legum eða menningarlegum ástæð- um taki ákvörðun um slíkt þegar þeir hafi sjálfir náð aldri og þroska til þess að skilja hvað felst í slíkri að- gerð. Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, Ingólfur Ein- arsson, formaður félags barnalækna á Íslandi, Þráinn Rósmundsson, yfir- læknir barnaskurðlækninga á Barnaspítala Hringsins og fulltrúi Barnaskurðlæknafélags Íslands, og Ragnar Bjarnason, prófessor og yfirlæknir barnalækninga á Barna- spítala Hringsins, skrifuðu undir yfirlýsinguna fyrir hönd Íslands Umskurður brot á réttindum drengja  Þingmaður leggur fram frumvarp til að vernda drengi til jafns við stúlkur fyrir ónauðsynlegum umskurði  Umboðsmenn barna og barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna gegn umskurði á börnum Ljósmynd/Getty Images Réttindi barna Umskurður á ungum börnum brýtur gegn grundvallarrétt- indum barna skv. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem gildir hérlendis.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.