Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Page 43

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Page 43
É g e r g a m a l l s n i l l i n g u r TMM 2018 · 2 43 hef haft af að horfa á dans. Það er æsandi. Ég hef þegið laun fyrir að skrifa um myndlist og myndlist breytir mér: ég fæ að skilja eitthvað mér áður óþekkt og það hverfur inní önnur skrif mín og hefur þar áhrif. Tónlist er lúmsk, tæki- færiseðli hennar gefur mér staðfestu, oft tek ég hana mér til fyrirmyndar og skrifa einsog undir trommuslætti, síbylju. Kvikmyndir kenna mér að tengja saman og brúa – sérstaklega í prósa. Þegar ég byrjaði að skrifa prósa vissi ég ekki hvernig ég ætti að segja sögu. Um leið og ég hugsaði mér að ég væri að lýsa kvikmynd komst ég áfram. Leikhús gerir mig að skarpari manneskju. Fólk þarf leikhús. Skóli er lélegt leikhús, harmleikur. Þú hefur lengi skrifað um myndlist fyrir dagblöð og tímarit? Síðan á níunda áratugnum. Núna býður fólk mér sem rithöfundi að skrifa um verk þess fyrir katalóga og sýningarskrár. Þá fæ ég meira frelsi, get ort ljóð eða látið hugann reika um listaverkið, boðið lesaranum inní minn heim og ávarpað listaverkið þaðan og þannig verð ég stofnun. Ég snýst á hvolf þegar ég skrifa um myndlist. *** Segðu mér frá heimabænum þínum: lífsförunautnum New York - Mér hefur alltaf líkað það hvað íbúðin mín er lítil, einsog herbergi í byggingu sem leigir út herbergi. Þú heyrir hljóðin frá ganginum, raddirnar og fótatakið. Það er ekki einangrandi. Úr glugganum sé ég annan af elstu kirkjugörðum borgarinnar. Þangað hef ég horft í fjörutíu ár. Hingað flutti ég í maí 1977. Ég elska New York. Hún bjó mig til. Hún kynnti mér svo marga möguleika til að haga lífi mínu og hún gaf mér almenna tilfinningu fyrir prívasí. Enginn horfir og allir sjá á sama andartaki. New York búar búa einir og saman. Þú varst aðstoðarkona ljóðskáldsins James Schylers. Á Íslandi er ekki hefð fyrir að rithöfundar hafi aðstoðarfólk, að ungt skáld aðstoði eldra, óreyndur málari máli málverk reyndari málara. Viltu segja mér frá starfi aðstoðarmanneskju rithöfundar? Aðstoðarkona mín heitir Emma. Ég skil eftir hrúgu af tímaritum sem hún fer yfir og merkir mér áhugavert efni. Hún hefur yfirsýn yfir allt sem birtist eftir mig, fyllir út eyðublöð og sendir skrár yfir ferilinn, bíó og CV, þangað sem beðið er um skrár. Hún gerir hluti sem koma í veg fyrir að ég lendi í vandræðum. Jimmy Schyler var frægt ljóðskáld sem allir elskuðu. Hann fékk taugaáföll og fór inn og útaf geðsjúkrahúsum, kom í heimsókn til vina sinna og bjó þar, ein heimsókn varði í tíu ár, þá fékk hann taugaáfall og ekki hægt að hafa hann lengur nálægt börnunum. Þá var hann á sextugsaldri og vinir hans, ríkt fólk í listaheiminum og nokkur auðug skáld, studdu hann, komu honum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.