Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Side 45

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Side 45
É g e r g a m a l l s n i l l i n g u r TMM 2018 · 2 45 samfélagsmiðlunum, þess þörfnumst við nú – brotunum og póstunum sem við deilum á samfélagsmiðlunum tekst það ekki enn. Fólk er vant því að hafa vald og að geta hreyft sig sem hópur, flokkur – einsog fuglarnir – að geta gefið hvert öðru merki, lesið hug hvers annars. Fyrirbærið sem ég nota mest og líkar best við og elska – tungumálið – er vandamálið. Við þurfum að vinna betur með tungumálið til þess að geta raunverulega miðlað hvert öðru. Forsetinn sem situr í Hvíta húsinu er merki um risavaxið samskiptaleysi. Ég þrái samfélagsheild þar sem við vitum hver við erum og getum gætt okkar og hvers annars. Allir samskiptamiðlar okkar skapa andhverfu sína: sam- skiptaleysi. Okkur vantar dýpra kerfi og hluti þess er að vera til staðar í tíma og rúmi á íhugulan hátt. Þegar ég kem til New York fer ég inn í annan tíma en í Texas, þar er tími minn opinn. Mig langar til að halda honum þannig hér. Fólk lifir öðruvísi hér. Mig langar til þess að vera betri í að halda í tíma minn og viðveru mína í tímanum alls staðar þangað sem ég kem og ég ferðast mikið. Eini tilgangur þess að eldast og eignast visku virðist vera sá að halda utan um tilfinninguna fyrir tímanum – viðhalda tímavitundinni – og missa ekki tímann frá sér um leið og maður hittir of margt fólk. Það er erfið vinna en mér finnst sem það sé eina vinnan sem fyrir höndum er. *** Segðu mér frá vinnuaðferðunum? Sköpunarferlinu? Fer eftir því hvað ég skrifa. Ljóðin byrja þannig að ég fæ í hugann línu sem virðist vera miðpunktur alls sem ég hef verið að hugsa um tíma. Það er einsog ég hafi ekki vitað hvað ég var að hugsa fyrr en orðin birtast, líkast því sem raunveruleikinn skipuleggi sig allt í einu. Þess vegna verð ég að taka undur vel eftir sjálfri mér því skyndilega kann ég að vera stödd í byrjuninni á ljóði. Það eru æsandi stundir. Ljóðið sem ég var að segja þér frá – sem ég sendi til New Yorker – varð þannig til að ég kom heim eftir að hafa verið á mörgum viðburðum sem höfðu valdið mér vonbrigðum vegna konu sem ég hafði verið í ástarsambandi við. Ó já, ég fatta það núna, hugsaði ég og það brotnaði smá í mér hjartað og ég settist niður á sandstól. Hvað er sandstóll? Stóll svo lágfættur að þú situr í honum næst sandinum, ekki upphækkaður einsog venjulegir stólar. Ég settist niður á sandstól í bakgarðinum við hliðina á Búddastyttu og ljóðið gaf sig mér. Fyrir skáldsögurnar þarf ég stöðugt að byrja upp á nýtt: ein lína startar kafla eða þætti – ég skrifa hratt en bækurnar verða til hægt á meðan efnið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.