Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Qupperneq 77

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Qupperneq 77
M i t t í m e r k i n g a r k r í s u n n i TMM 2018 · 2 77 sem einhver einhverstaðar muni brátt breyta þessu Öll erum við hluti af stórfjölskyldu Guðs og sannleikurinn er – eins og þú veist að allt sem við þörfnumst er ást.63 Ljóðið, We are the World, sungu flytjendurnir einmitt í sameiningu undir lok dagskrárinnar þann 7. september 2001, en ekki á seinni afmælistón- leikunum þremur dögum síðar, enda hrundu slíkir órar til grunna fimm kílómetrum sunnar morguninn eftir: fjórum dögum eftir súrrealismann í Madison Square Garden var stórfjölskyldan sundurtætt og klofin. Í vikunni á eftir lék áðurnefndur Peter Lamborn Wilson sér að ummælum þýska heim- spekingsins Theodors W. Adorno um stöðu ljóðsins eftir helförina, sem með árunum hafa orðið á þá leið að eftir Auschwitz sé ljóðlist óhugsandi. En okkur tókst að endurheimta hana, sagði Wilson: „Vera má að merking hennar sé önnur en áður. Vera má að hún merki ekki neitt. En hún er hér. Og hver hefði látið sig dreyma, við inngangshliðin að Buchenwald eða Treblinka, að einn góðan veðurdag hefðum við – Nike auglýsingar og sápuóperur um lög- fræðinga?“ Og hann hélt áfram: Mun einhver merking koma í ljós um atburðina 11. september? Án merkingar lýkur harmleik ekki með geðhreinsun, heldur einfaldlega geðdeyfð, endalausum sorgum. Leiðtogar okkar „leitast eftir uppgjöri“ – kannski með því að myrða urmul afganskra barna – kannski með nýrri krossferð gegn Sarasenunum – og vitaskuld með því að snúa aftur til hins venjulega. Við munum sýna „þeim“ – með því að hafna merkingunni. Við munum sofa því það er okkar réttur að hrökkva ekki upp við fát og skömm.64 Innan við mánuði síðar réðst Bandaríkjaher á Afganistan – þó reyndar væri þar „lítið eftir að sprengja“65 – og hóf stríð sem enn er í gangi og leitt hefur til dauða 50–70 þúsund manns. Tveimur árum síðar hófst Íraksstríðið hið síðara – endurtekin herferð gegn Sarasenunum – sem getið hefur af sér allt að því tífalt fleiri lík en hið fyrrnefnda. „Við munum vinna bug á skömm okkar,“ sagði jú Wilson. „Og það verður hefnd okkar. Það verður merking okkar. Siðferði okkar.“66 4. Ljóðið sem flutt er rafbjagað í áðurnefndu verki Stockhausens, Söng ungl- inganna (þ. Gesang der Jünglinge), er úr tíðasöng tengdum sögu úr Daníelsbók Biblíunnar, texta sem á sér hliðstæðu í Sálmunum. Úr Jerúsalem hafði Nebú- kadnesar Babýlóníukonungur látið velja „sveina nokkra, er engin líkamslýti hefðu og væru fríðir sýnum, vel að sér í hvers konar vísindum, fróðir og vel viti bornir,“ til að þjóna í höll sinni. Meðal þeirra var Daníel sem gat ráðið nokkra drauma konungs – eða mátti þann „leyndardóm auglýsa,“ eins og segir í Biblíunni – ásamt þeim Hananja, Mísael og Asarja, sem gefin voru
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.