Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Page 78

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Page 78
S n o r r i Pá l l 78 TMM 2018 · 2 nöfnin Sadrak, Mesak og Abed-Negó. Þegar hinir þrír síðastnefndu neituðu að tilbiðja gulllíkneski Nebúkadnesars fylltist hann „heiftarreiði […] svo að ásjóna hans afmyndaðist“ og gaf út boð um að þeir skyldu brenndir í ofni sem kynda ætti „sjöfalt heitara en vanalegt var að kynda hann.“ Eldurinn banaði þó aðeins þeim sem báru þríeykið að ofninum, en þeir Sadrak, Mesak og Abed-Negó stóðu við fjórða mann í ofninum – „ásýnd hins fjórða því líkust sem hann sé sonur guðanna“ – ósnertir af logunum og sungu ljóð almætti sínu til dýrðar:67 Lofið Drottin af himnum, lofið hann á hæðum. Lofið hann, allir englar hans, lofið hann, allir herskarar hans. Lofið hann, sól og tungl, lofið hann, allar lýsandi stjörnur. Lofið hann, himnar himnanna og vötnin, sem eru yfir himninum.68 Aftur og aftur vekur óhjákvæmilega upp spurningar um möguleika ein- staklinga á að hafna á aktífan máta þeirri tilvist sem Arnmundur íklæðir holdi – standa af sér eldslogana líkt og unglingarnir í brennsluofni Nebú- kadnesars. Undir þungum höggum þversagnarkennds – ef ekki beinlínis kleyfhugalegs – upplýsingaregns um annarsvegar bættari lífsgæði, síhækk- andi lífslíkur, almennar framfarir á öllum sviðum mannlegrar tilveru, hins- vegar veldisvaxandi kvíða, álag og þunglyndi, geðlyfjaneyslu sem rýkur upp úr öllu valdi, og óyggjandi eyðileggingaráhrif siðmenningarinnar á lífkerfi náttúrulegs umhverfis, stendur nútímamaðurinn frammi fyrir gríðarlegri merkingarkrísu í kaótískri veröld sem stöðugt kallar á reglu. Í lagi sínu, Europe is Lost, varpar breska rappynjan Kate Tempest upp mynd af þessari veröld – brotakenndum bútasaum sem birtist hinum sítengda daglega á túngarði samfélagsmiðlanna – og spyr svo retórískt: „og þið furðið ykkur á því að börn séu til í að deyja í nafni trúar?“69 Önnur og algengari viðbrögð birtast aftur og aftur í Aftur og aftur, til að mynda þegar Arnmundur ekur eitt kvöldið frá höfuðstöðvum DCS að heimili Stefáns á Arnarnesinu: Ég var með nýja kókflösku í glasahaldaranum fyrir framan mig. Ég var í kæru- leysisvímu við stýrið, tók upp Snapchat-myndbönd af sjálfum mér þar sem ég starði í myndavélina á símanum og lýsti því yfir að ég væri á móti ofbeldi og á móti kyn- ferðisglæpum gegn börnum og á móti rasisma og á móti kvenhatri og á móti stríðum og á móti þjóðarmorðum og á móti drónaárásum á brúðkaup og á móti smokka- banni kaþólsku kirkjunnar í Afríku. Í einu myndbandinu sagði ég nauðgurum landsins að vera heima hjá sér á menningarnótt. Ég fór yfir á rauðu beygjuljósi og svínaði harkalega fyrir jeppling sem nauðhemlaði, f lautuómurinn dvínaði þegar ég negldi á bensíngjöfina. (Bls. 282)
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.