Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Side 79
M i t t í m e r k i n g a r k r í s u n n i
TMM 2018 · 2 79
Þriðju viðbrögðin má svo finna í vinsældum hverskyns sjálfsstyrkingar,
andlegrar, líkamlegrar og efnahagslegrar, undir þeim formerkjum að „njóta
lífsins til fulls og nýta lífið til fulls,“70 með aðstoð hugleiðslu og tíma-
bundins meinlætis, séruppáklædds sjamanisma, stafrænna óróa og andafæla,
núvitundar og huglægra heilaskurðaðgerða – í stuttu máli: austrænna vinda
sem mildast hafa á leiðinni og aðlagast vestrænni samfélagsgerð eins og fyrir-
myndarnýbúum sæmir. Markmiðið er að verða „besta mögulega útgáfan af
sjálfum sér“– sú heimspeki að kannski sé ekki hægt að breyta heiminum,
en þeim mun ríkari ástæða sé til að breyta sjálfum sér, eða frekar að heim-
inum verði einmitt og einungis breytt með því að breyta sjálfum sér og bæta
sig, senda út frá sér góða og jákvæða strauma um leið og maður fjárfestir í
spennandi og arðvænlegu verkefni með góðri og gildri samvisku. Namaste
Inc. kannski. „Það er eitthvað við búddisma sem hentar gríðarlega vel í vest-
rænum neyslusamfélögum,“ segir Stefán, „samanber þessi endalausu viðtöl
við fólk sem stundar hugleiðslu. DJ-ar og grænmetisætur og millistjórnendur.
Mikill friður, mikið nú.“ Og skyndilega virðist botnlaus vísdómur falinn í
boðskap stórfjölskyldu Michaels Jackson sem syngur endurborin:
Við tökum ákvörðun
um að bjarga eigin lífi
það er satt – við sköpum betri tíð – bara þú og ég.71
„Er ekki eitthvað til í þessu hjá þeim sem segja [búddisma] vera hina full-
komnu hækju í vestrænt hversdagslíf?“ spyr Stefán og kinkar kolli til slóv-
enska heimspekingsins Slavoj Žižek sem bent hefur á að þótt „vestrænn
búddismi“ sé allajafna kynntur sem úrræði við streitunni og álaginu sem
ásækja gjarnan íbúa kapítalískra samfélaga – auðfarinn slóði að innri ró
og friði – sé hann í raun og veru fullkominn hugmyndafræðilegur viðauki
sem ýtir stoðum undir og réttlætir um leið fjarlægð einstaklinga og firringu
þeirra gagnvart hreyfingu hagkerfisins, merkingu tæknibreytinga og félags-
legum áhrifum þeirra.72 „Þú ræður hvort þú borgar, ræður hvort þú mætir,
ræður hvað þú gerir,“ segir Stefán. „Alvöru búddistar eru gæjar sem kveikja
í sér, skilurðu mig. En svona er hægt að lina kvíðann og stressið sem líf þitt
framkallar svo þú getir haldið áfram að lifa þessu sama líferni óbreyttu. Um
hvað snýst þetta allt hérna í kringum okkur,“ spyr hann Arnmund og heldur
áfram:
Tylla sér í tíu mínútur á hverjum föstudegi með logandi kerti og kjarna sig með litla
hugleiðsluappinu sínu og minna sig á alls konar þægilega og hentuga hluti á borð
við að þú sért ekki egóið þitt, að þú sért í raun eiginlega ekki til sem einstaklingur
heldur sértu krúttleg og meinlaus birtingarmynd náttúrulegrar einingar – og sért
þar með í raun ekki ábyrgur fyrir einu eða neinu – og draga svo niður heyrnartólin
með rólyndislegt sælubros á vör og skrolla niður Instagram og minna þig á að það
sé náttúrulega heittrúað fólk sem er rótin að allri illsku heimsins og bara ef allt
þetta heimska og þröngsýna lið um allan heim, þessir milljarðar manna sem vita