Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Page 126

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Page 126
U m s a g n i r u m b æ k u r 126 TMM 2018 · 2 augunum í að ná fram sannleikanum. Hún strýkur og þreifar frekar en að horfa bara. Nákvæmnin og vandvirknin í hinu efnislega myndar fullkomna and- stæðu við óreiðuna í huga Elínar þegar á líður. Elín er ógift og barnlaus og fyrir utan ömmu hennar sem ól hana upp er les- andinn ekki upplýstur um nein sam- bönd í lífi hennar. Þar er þó undanskilin lýsing á samskiptum hennar við eldri mann sem hún kynntist í ferðalagi til Asíu mörgum árum áður. Í magnaðri lýsingu á heimi þar sem hinn vestræni ferðamaður getur keypt sér hvað sem er – og gerir það – lýsir Elín því hvernig hún og maðurinn eyða tíma saman án þess þó að ástarsamband verði til, Elínu til vonbrigða. Um síðir áttar hún sig á því að maðurinn er fjöldamorðingi sem sker höfuðleðrið af fórnarlömbum sínum. Lítil húðpjatla með hári sem hún finnur á hótelherbergi mannsins er skelfileg og grótesk en kallast um leið á við aflimuðu fingurna sem Elín vinnur sjálf við að búa til og sömuleiðis hárkoll- urnar sem amma hennar gerði fyrir leikhúsið á árum áður: „Hún gerði hár- kollur sem héngu um allt og voru svo raunverulegar að þær gátu allt eins verið höfuðleður sem hún safnaði.“ (Bls. 106) Eitt árið gaf amman svo Elínu hárbolta úr eigin hári í jólagjöf – barnabarninu til hryllings. Öll vinna þau með ein- angraða hluta líkamans, taka þá úr sam- hengi og gefa þeim nýtt hlutverk, skapa jafnvel nýja heima þótt ekki fái lesendur að vita hvernig fjöldamorðinginn vann með sitt höfuðleður. Tengslarofið í þess- um stöku líkamshlutum kallast svo aftur á við tengslarofið í lífi þeirra. Þessi gríðarlega persónulega, í sumum tilvik- um leynilega vinna með efni og form er ákveðið stef í verkum Kristínar – í Hvít- feld lokar Dýrleif, amma Jennu, sig niðri í kjallara þar sem hún býr til óhugnan- legar litlar postulínsfígúrur í manns- mynd, og í smásagnasafninu Doris deyr má finna smásöguna Staðsetja, útvega, flokka, raða og varðveita þar sem drengurinn Sindri býr í kjallaranum hjá móður sinni og á þar gríðarstórt safn ýmissa muna – þar á meðal beina, skeggstubba, naglaafklippa og augn- hára.2 Elín og amma hennar, Sindri úr Doris deyr og Dýrleif í Hvítfeld vinna öll í kjallaranum þar sem undirmeðvit- undin býr og þótt vinna þeirra þyki í sumum tilfellum óhugnanleg og ósam- þykkt af samfélaginu en í öðrum tilvik- um fullkomlega gjaldgeng er einhver sterkur þráður sameiginlegur hjá þeim öllum, kannski fellur fjöldamorðinginn í sama flokk, í öllu falli virðast þau öll finna sig knúin til að halda áfram vinnu sinni hvort sem þau eru fordæmd af samfélaginu eða ekki. Þau eru rekin áfram af innri þörf til sanka að sér efni og skapa eigin heim og eiga í erfiðleik- um með að fóta sig í hinum heiminum. Áferð og eðli munanna sem Elín vinnur að hafa sterk áhrif á lesandann en segja má að áhrifin séu af tvennum toga. Annars vegar kalla óþægileg efni og líkamshlutar jafnvel fram líkamleg viðbrögð en einnig eru þetta tákn og hafa sem slík vitsmunaleg áhrif og vísa út fyrir sig. Myndlistarkonan í Kristínu birtist þannig ekki bara í áferðum held- ur líka í myndum og táknum sem eru stundum svo sérstök og dulmögnuð að þau fá á sig yfirbragð draumsins, hætta að vera fullkomlega raunsæisleg. Hér má t.d. nefna rótlausu plöntuna Tillandsiu sem Elín finnur fyrst á bak við sjón- varpið og birtist aftur í leikriti Ellenar sem og glerhesturinn óbærilegi sem kemur upp úr einum af kössunum sem skáldsagan hefst eiginlega á. Titillinn, Elín, ýmislegt kemur frá þessum kössum sem fundust í húsi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.