Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Side 129

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Side 129
SA SEM HEFUR HITT WOLAND VERÐUR EKKI SAMUR EFTIR í látlausu gervi sínu og með blæbrigðaríkri túlkun gerir Margrét Margarítu að nánast einu persónu sýningarinnar sem er íyrst og fremst manneskja, fremur en fígúra - þær hefðu mátt vera fleiri að mínu mati. Egill Heiðar Anton Pálsson hefði þurft að vera henni sterkari mótleikari sem Meistarinn til að gera túlkun hennar enn meira sannfærandi, en tekst ekki að gera meira en að krafsa í yfirborðið á persónu rithöfundar- ins sem hefur verið settur á geðveikrahæli og heldur að bókin hans hafi verið brennd. Hann sýnir okkur stillilegt æðruleysi Jesúa Ha-Nostri á einlægan hátt en tekst ekki að gera Meistarann að þeirri lykilpersónu sem hann hefði þurff að vera, hvorki í rýmislegri og hugmyndafræðilegri innilokuninni á geðveikrahælinu né sem ástvinur Margarítu. Því nær fórnarlund og ástarhiti Margarítu ekki að snerta áhorfandann jafn mik- ið og kraftur Margrétar sem leikkonu gefur færi á. Þriðja lykilpersóna verksins, sjálfur Woland, er í höndum Kristjáns Franklíns Magnúss og leikur hans er valdsmannslegur en ekki sérlega margtóna. Þannig nær hann hvorki að verða sérlega aðlaðandi né mjög ógnvekjandi og vald hans yfir lífi og örlögum mannanna fremur tilvilj- anakennt. Búningur hans er fyrirsjáanlegur og leikurinn fullmikið eftir því. Fylgja hans, kötturinn Behemot, er einkennilegt sambland af dansara í fetish-klúbbi og krakka í öskudagsbúningi. Elma Eísa Gunnarsdóttir er mun áhugaverðari sem Natasja, stúlkan sem þráir tilbreytingu og ævin- týri í gráum hversdagsleikanum og fylgir Margarítu þess vegna í norna- dansinn, en hún er sem vítiskötturinn. Woland og Behemot hefðu þurft að stafa frá sér margslungnari kynþokka og vera áþreifanlegri ógn við ríkjandi skipulag til að ná til fulls þeim áhrifamætti sem þeim er mögu- legur. Sá djöfull sem tælir er líka djöfullinn sem getur tortímt og Woland nær því aldrei að virðast fullfær um hvort tveggja. Aðrir leikarar skila sínu af prýði, eftir því sem persónur þeirra gefa færi á, sérstaklega Erling Jóhannesson sem bæði Leví Matteus og skáldið Bésdomní. Sýningin er þegar á heildina er litið bæði falleg og skemmtileg, en þeg- ar því er velt fyrir sér hvers vegna skáldverk Búlgakovs hafi orðið fyrir valinu sem efni í hana hneigist ég að því að halda að það sé fremur um- gerð hennar en innihald sem hafi heillað leikhópinn. Sagan býður upp á mikið sjónarspil og skemmtilegar lausnir, en það sem ferst hér dálítið fyr- ir er að gefa gaum að áhrifamætti boðskapar hennar og því ríka erindi sem sá boðskapur á við okkur nú í upphafi 21. aldarinnar, ekkert síður en á þeim tíma sem hún var skrifuð. Við búum í heimi sem einkennist af eftirliti, spillingu, skoðanastjórnun og ótta við óskilgreindar hættur, sem oftar en ekki er alið á af stjórnvöldum hverju sinni, heimi sem er þegar TMM 2004 • 1 127
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.