Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Page 22

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Page 22
Stefán Máni tengist henni sjaldan eða aldrei; þjáning, dauði, skelfing og persónuleg völd er það sem svalar í svip óslökkvandi þorsta hinnar hreinræktuðu illsku, sem gegnum tíðina hefur skotið rótum í hjörtum kvalara ýmis- konar, allt frá vesalingum með sjálfspíslarhvöt til alræmdra íjöldamorð- ingja og einræðisherra, sem eru í raun og veru líkari vélum en mann- eskjum að innri gerð og hugsa og hegða sér samkvæmt því. Á öndverðum dögum Guðbrands biskups Þorlákssonar bjó maður að nafni Björn ásamt konu sinni Steinunni á bænum Öxl í Breiðuvíkur- hreppi á sunnanverðu Snæfellsnesi. Hann var kallaður Axlar-Björn og vann sér það til frægðar að myrða vel á annan tug sofandi ferðalanga sem í vondum veðrum og á dimmum nóttum höfðu beðist gistingar á bænum. Glæpi þessa framdi Björn með dyggri aðstoð eiginkonu sinnar, og sökktu þau hjónin líkum ferðalanganna í tjörn þar nærri en gerðu eigur þeirra að sínum. Fyrir utan það að Björn var kvæntur maður þá minnir blóði drifin saga hans og umgjörð hennar á kvikmyndina Psycho (1960) eftir meist- ara Hitchcock, en í forgrunni hennar er brjálæðingurinn Norman Bates sem rekur mótel við gamlan þjóðveg og myrðir þá fáu gesti sem skrá sig þar inn og sökkvir síðan líkunum (í bifreiðum viðkomandi) í nálæga mýri. Fyrirmynd Normans Bates var Ed nokkur Gein, „náætan frá Wisconsin“, sem varð í lifanda lífi holdgervingur hins norður-ameríska raðmorðingja. Gein var fundinn ósakhæfur og dæmdur til ævilangrar vistar á geðspítala effir að hafa játað á sig kaldrifjuð morð, grafarrán og svívirðingar á líkum fórnarlamba sinna á 6. áratug 20. aldar, en Axlar- Björn og Steinunn voru dæmd til dauða og tekin af lífi árið 1596. Lífið hermir eftir listinni og öfugt, tíminn bítur í skottið á sér og illskan - eins og ástin - er ávallt viðstödd, í nútíð og fortíð, í lífi og listum. Fyrirbærin tvö, hugur glæpamannsins og hin hreinræktaða illska, eru eldsneytið sem drífur skáldsöguna Svartur á leik áfram, en umhverfið sem hún hrærist í er Reykjavík nútímans og þá fyrst og fremst sú dimma og hættulega Reykjavík sem birtist okkur í fjölmiðlum nánast vikulega, þar sem handrukkarar halda heilu fjölskyldunum í heljargreipum, þar sem rán, morðhótanir og ofbeldisverk eru daglegt brauð, þar sem fólk hverfur sporlaust og miskunnarlausir eiturlyfjasalar ráða ríkjum, þar sem smástelpur klæðast eins og klámstjörnur og kynlíf er orðið að andlits- og kærleikslausri athöfn, að vinargreiða, atvinnu, gjaldmiðli, þar sem allt má og ekkert er bannað, þar sem sá sterkari hefur alltaf rétt fyrir sér og hinn veiki er beygður í duftið. Svartur á leik er samt uppdiktað bókmenntaverk - það sem ég kýs að kalla fagurfræðilega glæpasögu - þó að efniviðurinn sé að stórum hluta 20 TMM 2004 • 3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.